Uppreist æru fékk tvenn verðlaun

Ritstjórn Stundarinnar hlaut blaðamanna­verðlaun ársins fyrir ítarlega umfjöllun um uppreist æru kynferðis­brotamanna. Konur voru áberandi sigurveg­arar í ár.

Sigurvegarar blaðamannaverðlaunanna.
Sig­ur­veg­arar blaða­manna­verð­laun­anna. Mynd: Þórður Snær Júlíusson

Ritstjórn Stundarinnar hlaut blaðamanna­verðlaun ársins fyrir ítarlega umfjöllun um uppreist æru kynferðis­brotamanna, áhrif þess á fórnar­lömb mannanna og tregðu stjórn­valda til upplýsinga­gjafar.

Til viðurkenningar fyrir fram­úrskarandi frammistöðu og gott fordæmi í íslenskri fjöl­miðlun veitir Blaðamanna­félag Íslands Blaðamanna­verðlaun ársins á hverju ári. Í ár voru verð­launin veitt við hátíðlega athöfn í Hörpu.

Viktoría Hermanns­dóttir hjá RÚV hlaut verðlaun fyrir viðtal ársins fyrir viðtal við Árna Jón Árnason í þættinum Á ég bróður á Íslandi? Segir í umsögn dómnefndar að um sé að ræða einstaka og fallega innsýn í líf manns þegar hann fær þær fréttir að hann eigi hálf­bróður og hittir í fyrsta sinn.

Alma Ómars­dóttir hjá RÚV hlaut verðlaun fyrir rannsóknar­blaða­mennsku ársins fyrir upplýsandi og heild­stæða umfjöllun um hverjir hlutu uppreist æru, hverjir væru meðmælendur þeirra og áhrif uppreistarinnar á brotaþola.

Sunna Ósk Loga­dóttir hjá Morgun­blaðinu hlaut verðlaun fyrir umfjöllun ársins fyrir að reifa skilmerki­lega hvernig raforku­þurrð til náinnar framtíðar kallar á ákvarðanir um hvort draga þurfi úr notkun hennar eða virkja meira og ólík sjónarmið þar um.

Kjarninn óskar sigurvegurunum innilega til hamingju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár