Ríflega 92 milljóna króna munur í bónusgreiðslum á milli kynja í bandarískum fótbolta

Bandaríska karla­landsliðið gæti að hámarki hlotið 1.114.429 Bandaríkja­dali í bónus­greiðslur miðað við 260.869 Bandaríkja­dali hjá konum.

Banda­ríkin unnu heims­meistara­titilinn í fótbolta kvenna um helgina en munur á greiðslum til fótbolta­manna er gífur­legur á milli kynja í fótbolta í Banda­ríkjunum og nær 730.000 dollurum eða rúmlega 92 milljónum íslenskum króna. Þetta kemur fram í greiningu The Guardian um bónus­greiðslur til fótbolta­manna í heims­meistara­mótinu.

Hæstu launa­greiðslur án bónusa eru 37.500 Bandaríkja­dalir á meðal bandarískra fótbolta­kvenna, samkvæmt The Guardian. Hæstu launa­greiðslur til karlkyns leikmanna eru hins vegar 108.695 Bandaríkja­dalir og er þar með strax um mikinn mun að ræða. Enn bætist við ef bónus­greiðslur eru taldar með.

Kvenna­landslið Banda­ríkjanna hefur nú unnið tvöfalt fleiri heims­meistara­titla en önnur landslið og var titillinn um helginna fjórði heims­meistara­titill bandaríska liðsins síðan fyrsta mótið í kvenna­flokki var haldið árið 1991. Banda­ríkin hafa nú unnið tvöfalt fleiri titla en öll önnur landslið til samans, en Þýskaland á tvo titla að baki og Noregur og Japan einn hvort.

Kvenna­landslið Banda­ríkjanna hlaut í mesta lagi þrjú þúsund dollara bónus greiðslu fyrir unna leiki miðað við 12.500 dollara bónus­greiðslu til karla. Enn fremur leika karlar ellefu fleiri leiki en konur. Því hefði í mesta lagi geta bæst 15.000 Bandaríkja­dalir við hjá konunum, miðað við 200.000 Bandaríkja­dali hjá körlunum. Hámarks­greiðslur til kvenna, ef þær hljóta allar bónus­greiðslur og vinna alla leiki, væri 52.500 Bandaríkja­dalir saman­borið við 308.695 Bandaríkja­dali hjá körlum.

Fá bónusgreiðslur sem konur fá ekki

Bónus­greiðslur bætast við til leikmanna ef þeir voru kallaðir upp sem einn hinna 23 leikmanna og fá konur að hámarki 37.500 Bandaríkja­dali en karlar 68.750. Auk þess eru fjölmargar bónus­greiðslur sem karlar fá en konur ekki, til að mynda fyrir spilaðan leik býðst bónus­greiðsla upp á 6.785 Bandaríkja­dali, hámark 85.599 Bandaríkja­dalir fyrir hámarks stig fengin og 195.652 Bandaríkja­dalir fyrir að halda áfram í útsláttar­keppni. Að hámarki gæti karla­landsliðið fengið 329.376 Bandaríkja­dali miðað við enga fyrir konurnar.

Gefið að allir bandarískir leikmenn hafi hlotið allar hámarks­greiðslur stæðu konurnar nú í 90.000 dollurum og karlarnir í 679.321 dollurum. Fyrir að vinna heims­meistara­mótið hlutu kvenkyns leik­mennirnir 110.000 dollara í bónus en karlarnir hefðu hlotið 407.608 dollara í bónus­greiðslur. Kvenna­landsliðið þarf nú að fara í sigur­reisu um Banda­ríkin og hljóta 60.689 dollara fyrir vikið, en karla­landsliðinu býðst ekkert slíkt. Karlkyns leikmenn standa því í 1.114.429 dollara miðað við 260.869 dollara hjá konunum.

Bónus­greiðslurnar eru greiddar af US Soccer til bæði karla og kvenna. Samkvæmt heimildum Guardian segir sambandið að mismunurinn sé að miklu leiti á ábyrgð Fifa, þó halda blaðamenn Guardian því fram að ekki sé hægt að segja það um allar greiðslurnar. Leikmenn bandaríska kvenna­lands­liðsins kærðu US Soccer fyrir kynja­mismun, þar sem launa­munurinn á milli liðanna voru helstu rök þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár