Ísland dregst enn lengra aftur úr Noregi

Nánast allir nýskráðir bílar í Noregi 2025 voru rafmagns­bílar, en á Íslandi var hlut­fallið aðeins 34%. Nýlegar breytingar á skatta­umhverfi bifreiða um áramót eru líklegar til að snúa þessu við.

Tryggð við jarðefnaeldsneyti
Tryggð við jarð­efna­elds­neyti Aðeins um 10% bíla á Íslandi eru raf­magns­bílar. Mynd: Golli

Noregur nálgaðist markmið sitt um að selja eingöngu núll­losunarbíla árið 2025, en rafbílar voru 95,9 prósent nýskráninga, upp úr 88,9% í fyrra.

Aðra sögu er að segja á Íslandi, þar sem rafbílar voru í minni­hluta nýskráðra bifreiða 2025. Aðeins 34% nýskráðra bíla á Íslandi 2025 voru hreinir rafmagns­bílar. Í Evrópu­sambandinu var sama hlutfall komið í 21% í nóvember.

Fallandi hlutdeild rafbíla á Íslandi

Á meðan hlutfall nýskráðra rafbíla hefur hækkað stöðugt í Noregi hefur þróunin snúist við á Íslandi. Hlutur rafbíla náði hátindi árið 2023 þegar 41% nýskráðra voru slíkir. Árið 2024 hrapaði síðan hlut­fallið niður í 20%, á meðan dísel­bílum fjölgaði upp í þriðjung nýskráðra.

Orku­skipti í kort­unum?Enn eru 78% bíla á Íslandi „hreinir“ jarð­efna­elds­neyt­is­bílar og aðeins 9% hreinir raf­magns­bílar.

Þetta hefur gerst á sama tíma og ívilnanir stjórn­valda fyrir rafmagns­bíla hafa verið skertar eða afnumdar. Í ársbyrjun …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Geir Gudmundsson skrifaði
    Hybrid bílar eru líka hreinir jarðefnaeldneytisbílar svo hlutfallið er 83% en ekki 78%. Á móti kemur að dísilbílar geta flestir keyrt á lífdísil, sem dregur úr loftslagsáhrifum þeirra um meira en 90%. Hvorki stjórnvöld né olíufélögin (sem selja lífdísil á eldsneytistöðvum sínum) eru þó að auglýsa það eða hvetja eigendur dísilbíla að tanka lífdísil.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár