Ítölsk stjórnvöld koma bankakerfinu til bjargar

Ítalskir bankar standa höllum fæti. Margar af elstu banka­stofnunum landsins þurfa á aðstoð að halda til að koma í veg fyrir fall þeirra.

Ítalska ríkis­stjórnin samþykkti í nótt að koma banka­kerfi landsins til bjargar með fjárhags­aðstoð. Það stendur höllum fæti.

Aðgerðir stjórn­valda tengjast sérstak­lega slæmri stöðu Monte dei Paschi bankanum. Bankinn greindi áður frá því að honum hafi mistekist að safna fimm milljörðum evra, jafnvirði tæplega 600 milljarða króna, til þess að styðja eiginfjár­stöðu bankans.

Samkvæmt breska ríkis­útvarpinu BBC nemur björgunar­pakkinn 20 milljörðum evra.

Bankinn var stofnaður árið 1472 og er sá elsti í heiminum sem enn er starfandi. Hann stóðst ekki álagspróf Seðla­banka Evrópu í sumar og munar þar miklu. 

Ákvörðun stjórn­valda á Ítalíu þykir til marks um að ekki séu öll kurl komin til grafar enn hvað varðar stöðu banka í Suður-Evrópu, en efnahags­erfiðleikar hafa leikið fjármála­kerfin grátt þar á undan­förnum árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár