Olíuverð hríðfellur - Átta prósent fall í dag

Yfirvöld í Banda­ríkjunum eru á vef Wall Street Journal sögð vera að beita Sádí-Arabíu þrýstingi um að auka fram­leiðslu olíu.

Olíuverð hefur hríð­fallið í dag, og nemur lækkunin tæplega 8 prósentum, þegar horft er til verðs á tunnunni af hráolíu. Það er nú 50,3 Bandaríkja­dalir, en fyrir rúmum sex vikum fór það yfir 80 Bandaríkja­dali.

Á vef Wall Street Journal segir að aukin fram­leiðsla í Sádí-Arabíu, og liðkun fyrir olíu­viðskiptum Íran, hafi leitt til þess framboð hafi aukist umtals­vert, og því hafi heims­markaðs­verðið lækkað skarpt að undan­förnu. 

Hlutabréfa­verð hefur einnig fallið nokkuð í Banda­ríkjunum að undan­förnu, og hélt sú þróun áfram í dag. S&P 500 vísitalan er nú neikvæð um rúmlega 6 prósent fyrir síðustu tólf mánuði, en vísitalan lækkaði um 0,66 prósent í dag.

Í umfjöllun Wall Street Journal kemur fram að horfur í heims­búskapnum hafi versnað, og útlit fyrir minni hagvöxt en áður var talið. 

Lækkun olíu­verðsins hefur sínar góðu hliðar, og er ein þeirra sú að Ísland nýtur góðs af lágu olíuverði. Lækkunin að undan­förnu ætti að draga úr verðbólgu­þrýstingi og flug­iðnaðurinn nýtur einnig góðs af lágu olíuverði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár