HB Grandi stærsta útgerðin - Þúsund milljarða heildarkvóti

Samkvæmt upp­lýs­ingum sem birtar voru í dag á vef Fiski­stofu heldur sam­þjöppun og hag­ræð­ing áfram í sjáv­ar­út­vegi.

HB Grandi er það útgerð­ar­fyr­ir­tæki sem er með mesta afla­hlut­deild allra íslenskra útgerða, eða 10,4 pró­sent. Samherji kemur þar á eftir með 6,7 pró­sent, en litlar breyt­ingar urðu á lista efstu útgerð­anna milli ára.

HB Grandi er eina útgerð­ar­fé­lagið sem skráð er á markað, en mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins nemur um 57,5 millj­örðum króna, miðað við loka­gengi á mark­aði í dag.

Heild­ar­fjöldi með afla­hlut­deild hefur dreg­ist veru­lega saman á und­an­förnum árum. Á síð­ustu tíu árum hefur fjöldi útgerða farið úr 672 í 382, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem Fiski­stofa birti í dag.

Eins og til umfjöll­unar var á

vef Kjarnans í gær

, þá liggja mikil verð­mæti í afla­heim­ildum í íslenskum sjáv­ar­út­vegi. Algengt upp­lausn­ar­virði á afla­heim­ildum, miðað við þorskígildi, er um 3000 á kíló. Í til­felli við­skipta HB Granda og Ögur­víkur, er þó miðað við lægri tölu, eða í kringum 2000. Þar eru afla­heim­ildir metnar á 14,5 millj­arða króna og er heild­ar­virði félags­ins örlítið lægra, eða 12,3 millj­arðar.

Hlut­hafa­fundur HB Granda á eftir að sam­þykkja við­skiptin og Sam­keppn­is­eft­ir­litið líka, en hlut­hafa­fundur hefur verið boð­aður til að fjalla um við­skiptin 16. októ­ber næst­kom­andi.

Sé litið til yfir­lits Fiski­stofu, má skoða hversu mikil verð­mæti liggja í afla­heim­ildum, miðað við fyrr­nefndar for­sendur, þ.e. 2000 og 3000 á kíló þorskígildis. Sé miðað við 2000 þá er virðið um 870 millj­arðar en miðað við 3000 um 1.300 millj­arðar. Það er upp­hæð sem er sam­bæri­leg inn­lánum í rík­is­bönk­unum tveimur, Íslands­banka og Lands­bank­anum. Sé miðað við 2.500 þá er virði afla­heim­ilda um 1.100 millj­arðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár