Perform borgaði 45 milljónir fyrir vefsjónvarpsaðgang að íslenskri knattspyrnu

Fyrirtæki sem selur vefsjónvarps­aðgang að leikjum að knattspyrnu­leikjum til veðmála­húsa keypti réttinn til að sýna frá íslenskum deildum af 365 á 400 þúsund evrur.

365 miðlar seldu rétt til sýninga á íslenskri knatt­spyrnu til fyrir­tækisins Perfom á 400 þúsund evrur. Perform selur vefsjónvarps­aðgang að leikjum í efstu deild og bikar­keppni til veðmála­húsa út um allan heim. Þetta kemur fram í sam­runa­skrá vegna sam­runa Fjar­skipta og 365 miðla sem birt var á vef Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins 10. maí síð­ast­lið­inn. Um er að ræða þá útgáfu sem birt var uppruna­lega og innihélt trúnaðar­upplýsingar. Þar á meðal voru upplýsingar um erlenda veltu 365 miðla, sem einskorðast að mestu við ofan­greindan samning við Perform.

365 miðlar hafa um nokkuð langt skeið verið með samning við KSÍ um sýningu á íslenskri knatt­spyrnu. Samningurinn var síðast endurnýjaður árið 2015 til sex ára. Hann felur bæði nafnarétt (samningur við Ölgerðina um að efstu deildir heiti Pepsí-deildin) og veðmála­rétt, sem er umræddur samningur við Perform.

Í samruna­skránni segir að veðmála­rétturinn sé nú í fyrsta skipti seldur áfram, til Perform. Í samruna­skránni segir: „Perform fær rétt á útsendingum og veðmála­rétt úr íslenska boltanum um allan heim á gildis­tíma samnings 365 og KSÍ. Skipta þessir samningar verulegu máli við fjár­mögnun samningsins við KSÍ. Það er yfirlýst markmið 365 að stefna að því að sýna alla 132 leikina í efstu deild karla í beinni útsendingu í sjónvarpi og á vef. Myndefni nýtist sömuleiðis í sjónvarps­fréttir og veffréttir og marg­víslegt dagskrár­efni jafnt í sjónvarpi sem útvarpi byggir á íslensku knatt­spyrnunni s.s. Markaregn. Sýningar­rétturinn nær til Íslands­móts karla og kvenna, bikar­keppni karla og kvenna, Meistara­keppni KSÍ í karla og kvenna­flokki sem og Deildar­bikarkeppni KSÍ í karla- og kvenna­flokki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár