Bæði Samherji og Init ofarlega á listum yfir „framúrskarandi fyrirtæki“ ársins

Alls eru 878 fyrirtæki á lista CreditInfo yfir Fram­úrskarandi fyrirtæki árið 2021. Sum þeirra sem skipa efstu sætin á listum hafa verið til umfjöllunar undan­farin misseri fyrir hátterni sem erfitt er að tengja við það að skara fram úr.

Samherji hf. er á lista yfir framúrskarandi fyrirtæki og raunar einnig Samherji Ísland ehf. og fleiri dótturfélög Samherja. Hins vegar er Samherji Holding ehf. ekki á lista, líklega þar sem félagið hefur ekki enn skilað ársreikningi fyrir árið 2019.
Samherji hf. er á lista yfir fram­úr­skar­andi fyr­ir­tæki og raunar einnig Samherji Ísland ehf. og fleiri dótt­ur­fé­lög Samherja. Hins vegar er Samherji Holding ehf. ekki á lista, lík­lega þar sem félagið hefur ekki enn skilað árs­reikn­ingi fyrir árið 2019.

Sjávar­útvegs­fyrirtækið Samherji hf. og hugbúnaðar­fyrirtækið Init ehf. eru hvort um sig ofarlega á lista CreditInfo yfir fram­úrskarandi fyrirtæki, sem kynntur er í dag. Í flokki stórra fram­úrskarandi fyrir­tækja er Samherji í 4. sæti á lista á meðan að Init er í 4. sæti í flokki lítilla fram­úrskarandi fyrir­tækja.

Vera þessara tveggja félaga við toppinn á listum yfir fram­úrskarandi fyrirtæki kann að koma einhverjum spánskt fyrir sjónir, enda hafa bæði Samherji og Init verið til umfjöllunar á umliðnum misserum fyrir hluti sem afar erfitt er að tengja við orðið fram­úrskarandi.

Samherji og stjórn­endur þess félags eru til rann­sóknar hjá yfir­völdum hérlendis vegna meintra mútu­greiðslna í rekstri félagsins í Namibíu og sömuleiðis eru skattamál félagsins til rann­sóknar.

Í vor var einnig opinberað að Samherji rak áróðurs­stríð gegn blaða­mönnum og ákveðnum fjöl­miðlum sem fjallað hafa um málefni fyrir­tækisins. Það var gert með vitund og vilja æðstu yfirmanna fyrir­tækisins.

Fyrr á árinu sagði frétta­skýringar­þátturinn Kveikur frá mörghundruð milljóna króna viðskiptum Init, sem hafði árum saman haldið utan um tölvu­kerfi fyrir helstu lífeyris­sjóði landsins, við starfs­menn og hluthafa félagsins. Fram kom í umfjöllun Kveiks að svo virtist sem eigendur Init hefðu reynt að fela raun­verulegan hagnað sinn af vinnu við tölvu­kerfi lífeyris­sjóðanna fyrir eigendum og notendum kerfisins.

Í úttekt sem Reikni­stofa lífeyris­sjóða (RL) lét endur­skoðunar­fyrirtækið Ernst & Young vinna vegna málsins kom fram að fyrir­tækið hefði brotið á samningum sínum við RL og að ekki fengist séð að eðlilegur rekstrar­tilgangur hefði að öllu leyti legið að baki greiðslum frá Init til félaga í eigu hluthafa og starfs­manna. Í gær tilkynnti RL að lífeyris­sjóðir hyggist taka yfir rekstur á hugbúnaðar­kerfinu úr höndum Init, vegna brota félagsins á samningi þess við RL.

Hvað þarf til að vera „framúrskarandi“ hjá CreditInfo?

Fram­úrskarandi fyrirtæki er vottun sem félagið CreditInfo býður íslenskum fyrir­tækjum upp á að kaupa, meðal annars til þess að „nýta hana í markaðs­efni og ásýnd fyrir­tækisins.“ „Þannig sjá bæði viðskipta­vinir, starfs­fólk og samstarfs­aðilar að þú ert með heilbrigða starfsemi í hraustum rekstri,“ segir á vef CreditInfo – og fyrir neðan er hnappur sem á stendur „Já takk kaupa vottun“.

Ef fyrirtæki kaupir vottun, sem kostar 99.000 kr. án vsk. fær félagið, að því gefnu að það uppfylli ákveðin skilyrði, viðurkenningar­skjal, bæði í ramma og á rafrænu formi, og leyfi til að nota merki Fram­úrskarandi fyrir­tækja í kynningar­efni.

„Til þess að teljast fram­úrskarandi þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði. Aðeins afreks­fólk atvinnu­lífsins stenst þær ströngu kröfur sem gerðar eru til Fram­úrskarandi fyrir­tækja og þær gefa vísbendingar um að þau séu líklegri til að ná árangri og standast álag en önnur,“ segir í kynningar­efni á vef CreditInfo. Þar fyrir neðan eru skilyrðin þulin upp:

  • Fyrir­tækið er í lánshæfis­flokki 1-3
  • Ársreikningi skal skilað á réttum tíma lögum samkvæmt
  • Hefur skilað ársreikningi til RSK síðustu þrjú ár
  • Fyrir­tækið er virkt samkvæmt skilgreiningu Creditinfo
  • Rekstrar­tekjur að lágmarki 50 milljónir króna síðustu þrjú ár
  • Framkvæmdar­stjóri skráður í fyrirtækja­skrá RSK
  • Rekstrar­hagnaður (EBIT) jákvæður síðustu þrjú ár
  • Ársniðurstaða jákvæð síðustu þrjú ár
  • Eiginfjár­hlutfall a.m.k. 20% síðustu þrjú ár
  • Eignir að minnsta kosti 100 milljónir króna síðustu þrjú ár

Alls eru 878 fyrirtæki á lista CreditInfo yfir fram­úrskarandi fyrirtæki í ár. Í fyrra voru þau 842 talsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár