Gagnrýna 13,3 milljóna húsnæðisbækling á tímum niðurskurðar

Fulltrúar Sjálfstæðis­flokks og Sósíalista­flokks í borgar­ráði gagnrýna að borgin hafi varið 13,3 milljónum króna í útgáfu rits um húsnæðis­uppbyggingu á sama tíma og samþykkt hafi verið að skera niður bókakaup grunn­skóla og opnunar­tíma félags­miðstöðva.

Reykjavíkurborg dreifði 64 blaðsíðna riti um uppbyggingu íbúða í borginni í 60.500 eintökum í síðasta mánuði.
Reykja­vík­ur­borg dreifði 64 blað­síðna riti um upp­bygg­ingu íbúða í borg­inni í 60.500 ein­tökum í síð­asta mán­uði. Mynd: Skjáskot af forsíðu bæklingsins

Kostnaður Reykja­víkurborgar við útgáfu og dreifingu bæklings um uppbyggingu íbúða nam rúmum 13,3 milljónum króna, án virðis­aukaskatts, samkvæmt því sem fram kemur í svari skrif­stofu borgar­stjóra og borgar­ritara við fyrir­spurn borgar­ráðs­fulltrúa Sjálfstæðis­flokksins.

Svarið var lagt fram á fundi borgar­ráðs í gær, og gagnrýndu flokkarnir sem eru í minni­hluta í borgar­stjórn útgáfu bæklingsins og settu í samhengi við þær niður­skurðar­aðgerðir sem nýlega hafa verið samþykktar í borginni.

Bókakaup grunnskóla og félagsmiðstöðvar

„Bæklingar af þessu tagi eru augljóst tækifæri til niður­skurðar sem meirihlutinn hefur vannýtt. Til saman­burðar hefur meirihlutinn ákveðið að skera niður bókakaup til bókasafna grunn­skólanna sem nemur 9 milljónum árlega. Hefur niður­skurðar­tillagan vakið mikla reiði meðal skóla­stjórnenda. Betur hefði farið á því að fjárfesta í bókum fyrir grunn­skólabörn heldur en bæklingi með upplýsingum sem vel mætti gera aðgengilegar á vef Reykja­víkurborgar,“ sagði í bókun borgar­ráðs­fulltrúa Sjálfstæðis­flokks vegna málsins.

Borgar­ráðs­fulltrúi Sósíalista­flokks Íslands benti svo á að útgáfa ritsins kostaði meira en Reykja­víkurborg sæi fram á að spara með því að loka félags­miðstöðvum fyrir unglinga 15 mínútum fyrr á næsta ári, en sparnaðurinn við þá aðgerð er áætlaður tæpar 10 milljónir.

„Nær hefði verið að skera niður við gerð þessa rits og tryggja þess í stað að unglingar hafi gott athvarf í formi félags­miðstöðva en starfs­fólk og þau sem koma að starfi miðstöðvanna hafa gagnrýnt þessar aðgerðir um að loka fyrr,“ segir í bókun fulltrúa Sósíalista­flokksins.

64 blaðsíðna rit í 60.500 eintökum

Bæklingur borgarinnar var prentaður í alls 60.500 eintökum, en ritið var 64 blaðsíður. Samkvæmt svari skrif­stofu borgar­stjóra var ritið unnið af almanna­tengsla­fyrirtækinu Athygli, sem hefur unnið sambærileg rit fyrir borgina undan­farin ár. Fyrir sína vinnu fékk Athygli tæpar 5 milljónir króna án vsk., fyrir­tækið Ritform sá um hönnun og umbrot fyrir tæpar 1,7 milljónir króna án vsk., Ísafoldar­prentsmiðja prentaði bæklingana fyrir 4,4 milljónir án vsk. og Póst­dreifing dreifði bæklingunum um borgina fyrir um 2,3 milljónir án vsk.

Í svari skrif­stofu borgar­stjóra og borgar­ritara segir að með útgáfu ritsins sé „verið að miðla upplýsingum um mikilvægt málefni fyrir borgarbúa“.

„Reykja­víkurborg hefur um árabil leitast við að greina stöðuna á húsnæðis­markaðnum og hverjar búsetu­óskir íbúa borgarinnar, höfuð­borgar­svæðisins og lands­byggðarinnar eru enda ríkir samkeppni á milli sveitar­félaga landsins um íbúa. Kannanir sem Reykja­víkurborg hefur látið framkvæma á búsetu­óskum hafa jafnan sýnt að íbúar nágranna­sveitar­félaga og lands­byggðarinnar hafa áhuga á að búa í höfuð­borginni. Allt eru þetta upplýsingar sem eiga erindi til borgarbúa og verður ekki síður ljóst ef málin eru sett í samhengi við núverandi stöðu. Uppfærð Húsnæðis­áætlun haustið 2022 telur yfir 26.000 íbúðir en til saman­burðar er heildar­fjöldi íbúða­eininga yfir 58.000 í borginni í dag,“ segir í svari skrif­stofunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár