ASÍ segir það „feigðarflan“ að staðfesta þriðja orkupakkann

Alþýðu­samband Íslands legst gegn frekari markaðs­væðingu raforku í umsögn sinni um þriðja orku­pakkann. Þegar hafi verið gengið of langt í þá átt.

Alþýðu­samband Íslands (ASÍ) segir að það sé mat sambandsins að þegar hafi verið gengið of langt í markaðs­væðingu grunn­stoða. Það sé „feigðarflan að staðfesta markaðs­væðinguna og ganga lengra í þá átt.“

Þetta kemur fram í umsögn ASÍ um þings­ályktunar­tillögu um stað­festingu á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um orkumál, oftast kallað þriðji orku­pakkinn.

Í umsögn ASÍ segir að málið hafi verið afar umdeilt meðal þjóðarinnar og kjörinna fulltrúa og yrði ekki slitið úr samhengi við umræðuna um hvaða grunn­stoðir eigi að vera í samfélagslegri eigu og undan­skildar markaðs­lögmálunum.

Í greinar­gerð með þings­ályktunar­tillögunni sé skýrt tekið fram að samkvæmt orkupakka 1 og orkupakka 2 sé almennt litið á orku eins og hverja aðra vöru sem samkeppnis­lögmál gildi um. Það hafi gerst með innleiðingu fyrsta orku­pakkans í raforkulög að vinnsla og sala raforku skyldi rekin í markaðs­kerfi á samkeppnis­grunni.

Að mati ASÍ er raforka er grunn­þjónusta og ætti ekki að vera háð markaðs­forsendum hverju sinni. „Raforka á að vera á forræði almennings og ekki á að fara með hana eins og hverja aðra vöru á markaði. Það er því mat ASÍ að of langt hafi verið gengið nú þegar í markaðs­væðingu grunn­stoða og feigðarflan að staðfesta markaðs­væðinguna og ganga lengra í þá átt. Rafmagn er undir­staða tilveru okkar í dag og það er samfélagsleg ábyrgð að tryggja fram­leiðslu og flutning til allra, sú ábyrgð er of mikil til að markaðurinn fái að véla með hana enda hefur markaðs­væðing grunn­stoða yfirleitt ekki bætt þjónustu, lækkað verð né bætt stöðu starfs­fólks.“

Að mati ASÍ sé það forsenda fyrir áfram­haldandi uppbyggingu lífsgæða að eignar­hald á auðlindum sé í samfélagslegri eigu og að „við njótum öll arðs af nýtingu auðildanna og getum ráðstafað okkar orku sjálf til uppbyggingar atvinnu hér á landi.“

Undir umsögnina skrifar Drífa Snædal, forseti ASÍ.

Sagði orkupakkamálið lykta af sérhagsmunapoti

Drífa er ekki fyrsti verkalýðs­leiðtoginn sem blandar sér í umræðu um orku­pakkamálið. Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, ­sagði í stöðu­uppfærslu á Facebook fyrir helgi að verka­lýðs­hreyf­ingin hafni því að hægt sé að taka stórar og umdeildar ákvarð­an­ir, á borð við þriðja orku­pakk­ann, án þess að full­komið traust og sátt ríki um mál­ið.

Hann sagði málið óneit­an­lega lykta af sér­hags­muna­poti og spurði jafn­framt hvort Íslend­ingar geti treyst kjörnum full­trúum til að taka svo stórar ákvarð­anir sem snúa að orku­málum þjóð­ar­inn­ar. „Svona miðað við allt sem á undan er geng­ið?“

Ragnar Þór telur að „hin ofsa­fengnu við­brögð þekktra hags­muna­afla við rétt­mætum spurn­ingum og gagn­rýni“ gefi svo sann­ar­lega til­efni til að staldra við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár