Ragnar Þór segir orkupakkamálið lykta af sérhagsmunapoti

Formaður VR treystir því að Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, vísi ákvörðun Alþingis um þriðja orku­pakkann til þjóðarinnar verði málið rekið áfram í gegnum þingið í óbreyttri mynd.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Bára Huld Beck

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að verkalýðs­hreyfingin hafni því að hægt sé að taka stórar og umdeildar ákvarðanir, á borð við þriðja orku­pakkann, án þess að fullkomið traust og sátt ríki um málið. Frá þessu greinir hann í stöðu­uppfærslu á Facebook-síðu sinni í dag. Hann segir málið óneitanlega lykta af sérhagsmuna­poti.

Hann spyr jafnframt hvort Íslendingar geti treyst kjörnum fulltrúum til að taka svo stórar ákvarðanir sem snúa að orkumálum þjóðarinnar. „Svona miðað við allt sem á undan er gengið?“

Ragnar Þór telur að „hin ofsa­fengnu viðbrögð þekktra hagsmuna­afla við réttmætum spurningum og gagnrýni“ gefi svo sannarlega tilefni til að staldra við.

Fólk ætti ekki að hafa áhyggjur af grunnþörfum

„Getum við gert þá kröfu að tekin verði afstaða í svo umdeildu máli í þjóðar­atkvæða­greiðslu og þjóðin tekið upplýsta ákvörðun út frá þeim upplýsingum sem liggja fyrir og þeirri reynslu sem við höfum á markaðs­væðingu innviða?“ spyr Ragnar Þór.

Hann segir að í nýjum lífs­kjara­samningi sem samþykktur var af stórum hluta verkalýðs­hreyfingarinnar hafi þau lagt áherslu á að ná kostnaði niður og auka þannig kaupmátt í bland við launa­hækkanir í stað þess að berjast eingöngu fyrir fleiri krónum til að fóðra kröfuna um gróða og enda­lausar hækkanir á grunn­þörfum.

„Og að félags­menn okkar þurfi ekki að hafa áhyggjur af grunn­þörfum eins og rafmagni, vatni eða húshitun. Að kostnaði við að lifa verði haldið í lágmarki og bæta þannig lífskjör til skemmri og lengri tíma, fyrir okkur sjálf og komandi kynslóðir,“ skrifar hann.

Mikið undir

Ragnar Þór bendir á að mikið sé undir fyrir félags­menn þeirra og fyrir­tækin. Hærri orka þýði hærra vöruverð og lægri kaupmátt og lakari samkeppnis­hæfni. Hærri orkuverð dragi úr mögu­leikum Íslendinga til meiri sjálfbærni.

Hann telur því einfald­lega of mikið vera undir. „Sagan hefur því miður kennt okkur allt annað en lobbí­istar sérhagsmuna­afla keppast við að sannfæra okkur um.

Við erum kynslóðin sem hófum einka­væðingu innviða. Verum kynslóðin sem steig niður fæti!

Ég treysti því að forsetinn okkar standi undir nafni og vísi þessari ákvörðun til þjóðarinnar verði málið rekið áfram í gegnum þingið í óbreyttri mynd,“ skrifar Ragnar Þór að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár