Leitaði vikulega á bráðamóttöku í fimm ár

Ný skýrsla Rótarinnar bendir til þess að komur heimilis­lausra á bráða­móttöku Land­spítalans endur­spegli „ekki bráð læknis­fræðileg veikindi heldur aðstæður sem tengjast félags- og kerfis­lægum þáttum, svo sem húsnæðisó­ör­yggi, skorti á dagþjónustu og takmörkuðu aðgengi að geð- og félags­þjónustu“.

Heimilis­laus einstaklingur leitaði að jafnaði vikulega á bráða­móttökuna undan­farin fimm ár. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu Rótarinnar.

Þar kemur fram að heimilis­lausir leita meðal annars á bráða­móttöku vegna þess að þeir hafa ekki í önnur hús að venda og úrræði skortir fyrir þennan hóp. Flestar komur eiga sér stað á meðan neyðar­skýli borgarinnar voru lokuð, en þau eru opin frá 17 síðdegis og til klukkan tíu að morgni næsta dags.

Hátt hlutfall koma sé án innlagnar, heildar­kostnaður verulegur og byrði vegna geð- og vímuefna­tengds vanda mikil. „Þetta mynstur bendir til þess að bráða­móttakan gegni í mörgum tilfellum hlutverki sem viðkomu­staður fyrir einstaklinga með flókinn og lang­vinnan vanda, þar sem skortur er á samfellu í þjónustu og viðeigandi úrræðum utan spítalans,“ segir í skýrslunni.

Í meðfylgjandi yfir­lýsingu segir að Rótin hafi um árabil bent á að fólk í heimilis­leysi mæti marg­víslegum þröskuldum í heilbrigðis­kerfinu. Lítið hafi hins vegar legið fyrir um hvaða áhrif þessir þröskuldar hafa á nýtingu heilbrigðis­þjónustu og hvaða kostnaður fellur til þegar fólk fær ekki viðeigandi þjónustu fyrr og leitar þar af leiðandi í auknum mæli í bráða­þjónustu. 

Komu að meðaltali þrisvar á ári 

Rann­sóknin náði til einstaklinga sem nýta sér gistiskýli Reykja­víkurborgar og sækja bráða­þjónustu Land­spítalans.

Á fimm ára tímabili komu 621 einstaklingur, eða tæplega 60 prósent þessa hóps, á bráða­móttökuna, samtals 9.491 sinnum. Langflestir, eða 72 prósent, leituðu til bráða­móttökunnar í Fossvogi en 27 prósent sóttu geðþjónustu við Hringbraut. Meðal­fjöldi koma var 15 á einstakling, en sá sem kom oftast átti 292 komur á bráða­móttöku á þessu fimm ára tímabili, eða einu sinni í viku í hverjum mánuði í fimm ár.

Í um 80 prósent tilvika leiddu komur ekki til innlagnar. „Þessi niður­staða gæti bent til þess að stór hluti koma endur­spegli ekki bráð læknis­fræðileg veikindi heldur aðstæður sem tengjast félags- og kerfis­lægum þáttum, svo sem húsnæðisóöryggi, skorti á dagþjónustu og takmörkuðu aðgengi að samþættri geð- og félags­þjónustu.

Svipuðu mynstri hefur verið lýst í evrópskum rann­sóknum á notkun heilbrigðis­þjónustu meðal fólks sem býr við heimilis­leysi í löndum með almennt aðgengi að heilbrigðis­kerfinu, þar sem bráða­þjónusta verður oft fyrsta eða eina aðgengi­lega heilbrigðis­þjónustan.

Þessa túlkun styðja einnig upplýsingar úr ársskýrslum Konukots, þar sem árið 2024 var hringt 107 sinnum á sjúkrabíl. Í flestum tilvikum var hringt á sjúkrabíl vegna líkamlegrar heilsu gesta en einnig vegna ofskömmtunar. Þetta bendir til þess að heilbrigðis­þarfir þessa hóps komi oft fram utan hefð­bundinnar heilbrigðis­þjónustu og leiði ítrekað til notkunar bráða­þjónustu og viðbragðs­kerfa,“ segir meðal annars í skýrslunni.

Konur líklegri til að búa við falið heimilisleysi

Sjónum var sérstak­lega beint að heimilis­lausum konum. „Þótt gagnasafn rann­sóknarinnar byggi á skráningum einstaklinga sem nýttu neyðar­skýli er ljóst að slíkar skrár ná ekki utan um allar birtingar­myndir heimilis­leysis,“ segir í skýrslunni. Heimilis­leysi sé fjölþætt og rann­sóknin hafi ekki náð til falins heimilis­leysis og ótryggra búsetu­forma.

„Þetta á sérstak­lega við um konur sem rann­sóknir sýna að eru líklegri til að búa við falið heimilis­leysi og leita síðar til heilbrigðis­þjónustu þegar vandi er orðinn alvarlegur. Þetta kann að skýra að hluta hvers vegna konur eru færri í gagna­safninu. Þrátt fyrir það sýna niður­stöðurnar að heilbrigðis­þjónustu­notkun og kostnaður meðal þeirra sem komu fram í gagna­safninu var verulegur.“

Alls áttu 169 konur samtals 3.027 komur. Meðaldvöl þeirra á bráða­móttöku var 7,1 klukku­stund, eða um 40 mínútum lengri en hjá körlum.

Fjöldi kvenna sem leitaði á bráða­móttöku var svipaður á milli ára en komum fjölgaði jafnt og þétt með árunum. „Í því samhengi hafa húsnæðis­miðaðar nálganir reynst sérstak­lega mikil­vægar fyrir konur, meðal annars vegna þess að þær auka öryggi þeirra og þannig eru þær síður útsettar fyrir ofbeldi.“

Konur koma oftar eftir líkamsárás

Algengustu ástæður fyrir komum kvenna voru andleg vanlíðan, verkir, sýkingar og slapp­leiki, líkams­árás, lyfja­eitrun og áfengis- og vímuefna­tengdur vandi.

Alls leituðu konur 94 sinnum til bráða­móttökunnar á þessu tímabili vegna líkams­árása og í þremur tilvikum voru konur lagðar inn í kjölfarið.

Sjaldgæfara var að karlar leituðu til bráða­móttöku vegna líkams­árása. Algengustu ástæður fyrir komum þeirra voru andleg vanlíðan, verkir, sýkingar og áfengis- eða vímuefna­vandi. Flestir sem leituðu til bráða­móttöku úr hópi heimilis­lausra voru greindir með geð- eða atferlis­raskanir, einkum tengdar áfengis- og vímuefna­vanda.

Kostnaðarsamt úrræði 

Heildar­kostnaður vegna komu heimilis­lausra á bráða­móttöku án innlagnar nam um 645 milljónum króna á rannsóknar­tímabilinu. Kostnaður tengdist sérstak­lega geðröskunum.

Árið 2024 var meðal­kostnaður hverrar komu um 106 þúsund krónur. Á því ári áttu heimilis­lausar konur 532 komur, sem samsvarar 56,4 milljónum króna í heildar­kostnað það ár.

Þegar heildar­kostnaður var greindur vegna innlagna, að meðtöldum tíma á bráða­móttöku, nam hann um 4,6 milljörðum króna. Saman­lagður uppreiknaður kostnaður tíma­bilsins nam 5,7 milljörðum á verðlagi í júlí 2025, eða 1,1 milljarði á ári að meðaltali.

Heimilisleysi sem heilbrigðisvandi 

„Kostnaðar­greining rann­sóknarinnar bendir til þess að lítill hópur einstaklinga virðist standa að baki stórum hluta heildar­kostnaðar. Niður­stöðurnar sýna jafnframt að stór hluti kostnaðar tengist geð- og atferlis­röskunum, áverkum og greiningum sem flokkast undir „þætti er hafa áhrif á heilbrigðis­ástand og samskipti við heilbrigðis­þjónustu“.

Slík kostnaðar­dreifing er talin tengjast endur­teknum komum, lang­vinnum heilsufars­vanda og erfið­leikum við útskrift og eftir­fylgni þegar einstaklingar búa við ótryggt húsnæði,“ segir í skýrslunni. Í því ljósi megi túlka niður­stöður rann­sóknarinnar sem vísbendingu um að skortur á stöðug­leika í húsnæði og þjónustu geti haft veruleg áhrif á nýtingu bráða- og legu­þjónustu.

Í yfir­lýsingu Rótarinnar segir að niður­stöðurnar bendi til þess að markviss fjár­festing í samþættri þjónustu, lágþröskulda­úrræðum í heilbrigðis­þjónustu og húsnæðismiðuðum lausnum geti allt í senn bætt lífsgæði fólks og stuðlað að hagkvæmari nýtingu heilbrigðis­kerfisins.

Á meðan ekki sé verið að greina reglulega þjónustu­notkun og kostnað í heilbrigðis­kerfinu, sé hætta á að „dýrustu úrræðin verði notuð þegar einfaldari, mannúðlegri og árangurs­ríkari þjónusta getur komið í veg fyrir að fólk þurfi að leita á bráða­móttöku eða leggjast inn á sjúkrahús. Niður­stöðurnar opna á tækifæri fyrir kerfið til að gera betur í þjónustu við þennan jaðar­setta hóp, bæta þjónustuna, skýra verkferla og þar með lækka kostnað“.

Túlka megi niður­stöður rann­sóknarinnar í samhengi við húsnæðis­miðaðar nálganir, en rann­sóknir hafi sýnt að þegar stöðugt húsnæði og viðeigandi stuðningur er í boði dregur úr endur­komum á bráða­móttöku. „Þótt slík íhlutun sé ekki metin beint í þessari rannsókn, samræmast niður­stöður hennar þeirri ályktun að skortur á húsnæðis­öryggi sé lykil­þáttur í þeirri notkun þjónustu sem hér er lýst.“

Heimilis­leysi sé ekki einungis félagslegt vandamál heldur einnig mikilvægt heilbrigðismál.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Því miður er ekki rauni sú að ódýru og öruggustu leiðirnar eru farnar. Við erum gjörn á að ýta vandanum á undan okkur þó hann sé augljós.
    0
  • Guðjón Jensson skrifaði
    A tarna er mjög mikilsverð vísbending hvernig bæta megi heilbrigðisþjónustuna með því að þessum málum sé sinnt á þeim vettvangi þar sem þau eiga betur heima. Heilbrigðisþjónustan er mjög mikilsverð fyrir okkur öll og fremur dýr.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár