Pútín: Eina svarið að herða baráttuna gegn hryðjuverkum

Forseti Rússlands, Vladímir Pútín, segir að morðið á sendi­herra Rússlands í Tyrklandi hafi átt að graf undan samskiptum Rússlands og Tyrklands, en það muni ekki gera það.

„Gleymið ekki Aleppo! Gleymið ekki Sýrlandi,“ sagði 22 ára gamall lögreglu­maður, Mert Altintas, sem skaut sendi­herra Rússlands í Tyrklandi, Andrey Karlov, til bana á lista­gallerýi í Ankara. Eftir skot­bardaga við lögreglu­menn lést morðinginn. Karlov hafði verið sendi­herra Rússlands í Tyrklandi síðan 2013. 

Ljós­myndari AFP frétta­stofunnar náði ótrúlegum myndum af atburðinum og eftir­leiknum, þar sem skelfingu lostnir gestir á staðnum leituðu skjóls eftir að Karlov hafði verið skotinn til bana.

Vladímir Pútín, forseti Rússlands, sagði í sjónvarps­ávarpi að þessi atburður væri miðaður gegn samskiptum Rússlands og Tyrklands, en hann myndi ekki grafa undan þeim. Þvert á móti myndu bæði rússnesk og tyrknesk yfirvöld vinna saman að því að rannsaka aðdrag­anda þessa hrotta­lega morðs og berjast gegn hryðjuverka­ógninni með enn meiri krafti. „Hryðju­verka­mennirnir munu fá að finna fyrir því,“ sagði Pútín, þegar hann horfði alvöru­gefinn í sjónvarps­mynda­vélarnar.

Erdogan forseti Tyrklands, hefur sagt að öryggismál verði tekin til endur­skoðunar í Ankara eftir atburðinn og hefur boðað rannsókn á því hvernig það gat gerst, að morðinginn hafi komist inn í lögreglu­liðið í borginni undir fölsku flaggi.

Hann sagði enn fremur að morðið myndi ekki skaða samskipti Rússlands og Tyrklands til frambúðar. „Hryðju­verkamenn eru óvinurinn, og við munu berjast gegn honum sem aldrei fyrr,“ sagði Erdogan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár