Um 300 skjálftar við Sýrfell – rólegra hjá Þorbirni

Skjálfta­virknin á Reykjanesi hefur færst til vesturs og norðan við Sýrfell urðu fjölmargir skjálftar í gær. Óvissu­stig almanna­varna er enn í gildi.

Skjálftavirknin hefur færst vestar en í hrinunni sem byrjaði í janúar.
Skjálfta­virknin hefur færst vestar en í hrin­unni sem byrj­aði í jan­úar. Mynd: Veðurstofa Íslands

Virkni í jarð­skjálfta­hrinu sem verið hefur í gangi nálægt Reykja­nestá frá því um miðjan febrúar jókst aftur seinni­partinn í gær. Fimm skjálftar mældust yfir 3 stig og sá stærsti, sem varð rétt fyrir kl. 17 , var 3,4 stig.

Skjálftarnir eru stað­settir um 1 kílómetra norðan við Sýrfell. Hátt í 300 skjálftar mældust þar í gær en rólegra hefur verið á þessum slóðum í dag. Árið 2013 var hrina á svipuðu svæði en þá voru fleiri stærri skjálftar og sá stærsti 5,2 að stærð, samkvæmt upplýsingum Veður­stofu Íslands.

Veður­stofan varar enn við hella­skoðun við Eldvörpin á Reykja­nesskaganum. Gasmælingar þar að undan­förnu hafa sýnt lífs­hættuleg gildi á koltvísýringi og súrefnis­skort í helli við bílastæði þaðan sem eru vinsælar göngu­leiðir.

Dregið hefur verulega úr jarð­skjálfta­virkni við Þorbjörn að undan­förnu. Ekkert landris mælist lengur og líklegasta skýringin sé að kviku­innflæði sé lokið í bili. Jarð­skjálfta­hrina hófst þar í lok janúar og um mánuði síðar hafði land þar risið um 5 sentí­metra. Líklegasta skýringin er talin kviku­söfnun á nokkurra kílómetra dýpi.

Óvissu­stig almanna­varna er enn í gildi.

Gosið á landi og í sjó

Reykja­nesskaginn er yngsti hluti Íslands. Hann er mjög eldbrunninn og dregur nafn sitt af allmiklu gufu- og leir­hverasvæði, eins og segir í ítarlegri grein Magnúsar Á. Sigur­geirssonar jarð­fræðings í Náttúru­fræðingnum frá árinu 1995.

Í samantekt Magnúsar og fleiri í Íslensku eldfjalla­vefsjánni kemur fram að eldstöðva­kerfi Reykjaness hafi verið í meðallagi virkt. Norður­hluti þess renni inn í kerfi Svarts­engis en syðstu níu kíló­metrarnir séu undir sjávar­máli. Á nútíma (síðustu tíu þúsund árin eða svo) hafa þar orðið fleiri en fimmtán gos. Eldgos á landi hafa einkennst af hraun­flæði en í sjó hafa orðið „surtseysk sprengigos“ eins og það er orðað.

Frá landnámi hefur þrisvar sinnum gosið á Reykjanesi, síðast á árunum 1211-1240 og eru þeir atburðir kallaðir Reykja­neseldar. Á því tímabili gaus nokkrum sinnum, þar af urðu þrjú gos í eldstöðva­kerfi sem kennt er við Svarts­engi. Eldgosin voru hraungos á 1-10 kílómetra löngum gossprungum. Gosvirkni á Reykjanesi-Svarts­engi einkennist af goslotum eða eldum sem geta varað í áratugi og má búast við goslotu á um 1100 ára fresti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár