Hvergerðingar segja Elliða tala með óábyrgum hætti um orkunýtingu í Reykjadal

Bæjar­stjórnin í Hvera­gerði hnýtti í orð Elliða Vignis­sonar sveitar­stjóra í Ölfusi um mögulega orku­nýtingu í Reykjadal eða nágrenni, á fundi sínum í vikunni.

Reykjadalur er vinsæll áfangastaður ferðamanna. Svæðið er innan Sveitarfélagsins Ölfuss.
Reykja­dalur er vin­sæll áfanga­staður ferða­manna. Svæðið er innan Sveit­ar­fé­lags­ins Ölfuss. Mynd: Arnar Þór

Bæjar­stjórnin í Hvera­gerðisbæ setti fram nokkuð hvassa gagnrýni á hugmyndir Elliða Vignis­sonar, sveitar­stjóra í nágranna­sveitar­félaginu Ölfusi, um mögulega orku­nýtingu í Reykjadal, í bókun á bæjar­stjórnar­fundi á fimmtudag.

Elliði ræddi um mögulega orku­vinnslu á svæðinu, sem er innan sveitar­félaga­marka Ölfuss að mestum hluta, í samtali við mbl.is undir lok október­mánaðar. Þar sagði Elliði að svæðið í kringum Reykja­dalinn væri mjög ríkt af orku og að Ölfusingar vildu „sjá fram á orku­nýtingu á svæðinu“ áður en farið yrði í frið­lýsingar svæðisins, sem er á náttúru­minjaskrá.

„Við höf­um lýst vilja til þess að fara í til­tölu­lega þrönga friðlýs­ingu á Reykja­daln­um. Að skoða það að friðlýsa frá topp­um fjall­ana niður í botn dals­ins. Við höf­um ekki viljað taka stærri skref fyrr en búið er að sjá út úr hvernig eigi að nýta ork­una á svæðinu í kring­um Hengil­inn og Ölkeldu­háls og víðar,“ sagði Elliði við mbl.is.

Náttúran verði látin njóta vafans

Bæjar­stjórnin í Hvera­gerði er óhress með þessi ummæli og segir að allar rann­sóknir hafi sýnt fram á að áhrif vegna hugsanlegrar orku­nýtingar á svæðinu hefðu veruleg áhrif á Hvera­gerði.

„Bæjar­stjórn telur afar óábyrgt af sveitar­stjóra Ölfuss að tala um að skoða eigi orku­nýtingu á svæðinu þar sem mikil óvissa ríkir um áhrif á loft, vatns­lindir og náttúru og hvetur til að náttúran verði látin njóta vafans,“ segir í bókun Hver­gerðinga.

Þar segir einnig að Reykja­dalurinn og svæðið í kring hafi síðustu ár verið í frið­lýsingar­ferli, sem „því miður“ hafi verið stöðvað af Sveitar­félaginu Ölfusi fyrir um ári síðan.

„Bæjar­stjórn Hvera­gerðisbæjar hefur ætíð verið á móti orku­nýtingu á svæðinu eða allt frá því að hugmyndir um Bitru­virkjun voru uppi á borðinu,“ segir í bókun bæjar­stjórnar, sem telur ljóst að allar framkvæmdir á svæðinu myndu draga úr gildi þess sem útivistar­svæðis fyrir þá sem vilji njóta óspilltrar náttúru.

„Svæðið, sem er á náttúru­minjaskrá, er einn vinsælasti áfanga­staður erlendra sem innlendra ferða­manna og hafa vinsældir þess aukist stöðugt undan­farin ár,“ segir í bókun bæjar­stjórnarinnar í Hvera­gerðisbæ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár