Donald Trump kjörinn forseti Bandaríkjanna

Donald J. Trump hefur verið kjörinn nýr forseti Banda­ríkjanna. Hillary Clinton hefur sett sig í samband við hann og lýst því yfir að barátt­unni um forseta­stólinn væri lokið. Trump hefði sigrað. Trump ávarpaði stuðnings­menn sína rétt í þessu. Þar sagði hann: „Mér hefur rétt í þessu borist símtal frá Clinton. Hún óskaði okkur til hamingju með sigurinn og ég óskaði henni og fjöl­skyldu hennar með mjög harða baráttu.“

Nú sé tími fyrir Bandaríkja­menn að sameinast og láta sárin gróa. Trump sagðist heita því gagnvart hverjum einasta Bandaríkja­manni að hann myndi verða forseti þeirra allra. Þeir sem hefðu ekki stutt hann, og það hafi verið fjölmargir, mættu eiga von á því að Trump myndi teygja sig til þeirra til að óska eftir leiðsögn um hvernig mætti sameina þjóðina. „Hinir gleymdu íbúar Banda­ríkjanna, verða ekki gleymdir lengur.“

Trump sagðist ætla að byggja upp innviði þjóðarinnar og með því skapa milljónir starfa. Hann sagðist ætla að eiga í frábærum samskiptum við öll önnur lönd sem væru tilbúin að eiga í frábærum samskiptum við Banda­ríkin.

Niður­staðan er þvert á allar spár, sem gerðu ráð fyrir sigri Clinton. Fljótlega varð þó ljóst, þegar talning atkvæða hófst, að Trump væri að fara að sigra í lykil­ríkjum sem fáir höfðu átt von á að hann myndi sigra í.

Viðbrögð fjármála­markaða við góðu gengi Donalds Trump í forseta­kosningunum í Banda­ríkjunum voru á þá að hlutabréf hafa fallið í verði og gull hefur rokið upp, samkvæmt fréttum Bloomberg. Þetta eru mestu sveiflur sem sést hafa á mörkuðum síðan Brexit-kosningin fór fram í Bretlandi með þeim niður­stöðum, og breskur almenningur kaus með útgöngu úr Evrópu­sambandinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár