Sjálfstæðismenn reyndu að fá Laugardals-smáhýsin færð út í Örfirisey

Borgar­fulltrúar Sjálfstæðis­flokksins lögðu fram tillögu um það á borgar­stjórnar­fundi í vikunni að smáhýsi sem samþykkt hefur verið að setja niður á auðu svæði í Laugardal yrðu frekar sett upp í Örfirisey.

Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur.
Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­stjórn Reykja­víkur. Mynd: Bára Huld Beck

Borgar­fulltrúar Sjálfstæðis­flokksins lögðu það til, á borgar­stjórnar­fundi á þriðjudag, að smáhýsin sem samþykkt hefur verið að setja upp á auðu svæði á milli Engja­vegar og Suður­lands­brautar í Laugardal yrðu ekki sett niður þar, heldur úti í Örfirisey.

Þetta lögðu borgar­fulltrúar flokksins til undir umræðum um nýjustu fundar­gerðir borgar­ráðs, en borgarráð samþykkti þann 7. október síðastliðinn nýtt deili­skipulag sem heimilar að fimm smáhýsum fyrir skjólstæðinga velferðar­sviðs borgarinnar verði komið fyrir í Laugar­dalnum.

Tillaga sjálfstæðis­manna laut að því að það yrði skoðað að koma smáhýsunum heldur fyrir á svæði Faxa­flóahafna úti á Granda, nánar tiltekið þar sem hverfis­bækistöð Vestur­bæjar stendur – og fjögur önnur smáhýsi.

„Með fjölgun smáhýsanna í Örfirisey skapast grund­völlur til að samnýta starfs­mann til að hafa umsjón með húsnæðinu og styðja við íbúa þeirra til sjálf­stæðs lífs,“ sagði í tillögu borgar­fulltrúanna.

Þessari breytinga­tillögu við fundar­gerð borgar­ráðs var vísað frá með 12 atkvæðum borgar­fulltrúa Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna gegn 9 atkvæðum borgar­fulltrúa Sjálfstæðis­flokksins og Miðflokksins, en borgar­fulltrúar Sósíalista­flokks Íslands og Flokks fólksins sátu hjá við afgreiðslu málsins.

Umrædd smáhýsi eru hluti af hugmynda­fræðinni „Hús­næði fyrst“ sem er á vegum vel­ferð­ar­sviðs borgarinnar og þau eru hugsuð til að hjálpa fólki sem hefur verið í heim­il­is­leysi og er með miklar þjónustu­þarfir.

Fimm smáhýsi af nákvæmlega þessari gerð hafa þegar verið tekin í notkun í Gufunesi, en erfiðlega hefur gengið að koma þeim fyrir á öðrum stöðum í borginni, eins og rakið var í forsíðu­frétt Frétta­blaðsins fyrr í vikunni.

Þar sagði frá því að tíu hús af þessari gerð hafi staðið óhreyfð í Skerja­firði í eitt og hálft ár og haft var eftir Hólmfríði Helgu Sigurðarsdóttur upplýsinga­fulltrúa hjá Reykja­víkurborg að erfiðlega hefði gengið að festa lóðir fyrir þau, þrátt fyrir að umhverfis- og skipulags­svið hefði unnið að því í meira en tvö ár.

„Það hefur gengið hægar en vonir stóðu til um, meðal annars vegna andstöðu íbúa og fyrir­tækja í mörgum hverfum,“ sagði Hólm­fríður Helga og Regína Ásvalds­dóttir, sviðs­stjóri velferðar­sviðs borgarinnar, sagði að umræðan um smáhýsin hefði „litast af nokkrum fordómum“ og það hefði haft áhrif á framgang verk­efnisins.

Andstaða – en líka stuðningur

Í umsögnum ýmissa aðila um deili­skipulag vegna smáhýsanna sem til stendur að setja niður í Laugar­dalnum var tekið fram að umsagnar­aðila þætti verkefnið mikilvægt, en gerðar voru athuga­semdir við stað­setninguna. Meðal annars var stungið upp á því að smáhýsi yrðu sett niður í Geld­inga­nesi, Graf­ar­vogi, mið­borg, Vest­ur­bæ, Breið­holti og Sunda­hafn­ar­svæð­inu frekar en í Laugar­dalnum.

Svipað hefur verið uppi á teningnum í tengslum við smáhýsi af sömu gerð sem samþykkt hefur verið að setja upp á Stórhöfða og í Hlíða­hverfi. Fólk vill gjarnan sjá úrræði af þessu tagi sett upp af yfir­völdum – en bara helst ekki þar sem það sjálft býr eða er með rekstur.

Í umræðum á netinu á meðal íbúa í Laugar­dalnum hefur þó ekki bara borið á gagnrýni, heldur hefur að minnsta kosti hluti íbúa í hverfinu lýst ánægju með áformin. Íþrótta­félögin í Laugar­dalnum hafa einnig fengið gagnrýni fyrir að lýsa sig andsnúna stað­setningu smáhýsanna í umsögnum við deili­skipulagið.

Í Facebook-hópi íbúa í Laugar­neshverfi sögðu allnokkrir íbúar og foreldrar barna sem æfa hjá félögunum að umsagnir íþrótta­félaganna væru þeim vonbrigði.

„Því miður halda margir að fólk með fíkn­sjúkdóma og/eða geðsjúk­dóma sé ofbeldis­fyllra en aðrir. Þarna gafst íþrótta­félögunum frábært tækifæri til að eiga uppbyggilegt samtal við bæði hverfa­samfélagið, börnin sem æfa hjá þeim og foreldra þeirra um það hvernig við getum öll búið saman og hvernig hægt er að slá á ótta og fordóma með fræðslu og samtali, en þau kjósa í staðinn að halda sig við úreltar og skaðlegar staðal­myndir og fordóma. Sem íbúa í hverfinu eru mér það mikil vonbrigði, þótt ég eigi ekki barn sem æfir hjá þessum félögum,“ sagði einn íbúi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár