Hvenær fær kóngurinn Karl að prýða pundið?

Fjölmargt í daglegu lífi Breta minnir á Elísabetu drottningu eftir sjötíu ára valdatíð. Eftir andlát hennar er þegar hafinn undir­búningur að því að setja andlit hins nýja konungs, Karls III, á peninga­seðla og mynt.

Elísabet drotting á tíu punda seðlinum.
Elísabet drott­ing á tíu punda seðl­inum. Mynd: EPA

Frímerki og flögg. Póst­kassar og peninga­seðlar. Það er erfitt að komast um Bretlands­eyjar án þess að sjá andlit Elísabetar II drottningar eða upphafs­stafi hennar hér og þar. Stofnanir eru kenndar við hana, Vegabréfa­útgáfa hennar hátignar er ágætt dæmi, og hver einasti lögreglu­þjónn er með upphafs­stafi hennar í merki á húfunni.

Guð blessi drottninguna (God save the queen) verður ekki lengur lokalínan í þjóð­söngnum heldur Guð blessi kónginn. Þann fyrsta sem ríkir yfir breska samveldinu í rúmlega sjötíu ár, Karl III.

En það eru kannski peninga­seðlarnir og myntin, sterlingspundin og penníin, sem eru hvað augljósasta áminningin um tilveru hennar og sess í bresku samfélagi. Sess sem sonur hennar þarf nú að reyna að fylla að henni látinni.

Þjóðar­sorg ríkir í Bretlandi eftir andlát drottningarinnar. Og því er engra skyndilegra breytinga að vænta. Seðlar og mynt sem andlit hennar prýða verða áfram í gildi, það hefur Englands­banki, seðla­banki Bretlands, staðfest. En hann hefur einnig staðfest að umskipti munu eiga sér stað. Áætlun þar að lútandi verður þó ekki kynnt fyrr en að Bretar hafa fengið tíma til að syrgja Elísabetu.

Peninga­prent­vélarnar verða því ekki ræstar alveg á næstunni.

„Starfs­fólk Englands­banka vill senda innilegustu samúðar­kveðjur til konungs­fjöl­skyldunnar,“ sagði í yfir­lýsingu bankans í gær. Seðla­banka­stjórinn Andrew Bailey sagði: „Ég er mjög hryggur yfir þeim tíðindum að hennar hátign, drottningin, sé látin enda hefðu flestir Bretar engan annan þjóð­höfðingja haft og að hennar yrði minnst sem mikillar fyrir­myndar landsins alls og samveldisins.

Andlit Elísabetar er ekki aðeins á breska sterlingspundinu heldur einnig á peninga­seðlum og mynt sem notuð er í Kanada, Ástralíu, Nýja-Sjálandi og víðar í samveldinu.

Ekki stendur til, samkvæmt því sem breskir fjöl­miðlar segja, að innkalla alla seðlana og myntina. Þess í stað verður þeim skipt hægt og bítandi út á næstu mánuðum.

Þetta verður ekki í fyrsta skipti sem slíkt er gert. Fyrir árið 1972 var einu pundi skipt í 20 skildinga (shillings) sem hver um sig jafngilti 12 penníum. Þannig voru 240 penní í einu pundi. Frá og með árinu 1972 voru skildingar lagðir niður og verðgildi á nýju penníinu varð 2,4 sinnum meira en áður hafði verið. Aðlögunar­tímabilið stóð þá í átján mánuði.

Þegar nýir og nútíma­legir 50 og 20 punda seðlar voru kynntir til sögunnar fyrir nokkrum mánuðum með andliti Elísabetar, giltu þeir gömlu með myndum af frumkvöðlinum Matthew Boulton og verk­fræðingnum James Watt, áfram í 16 mánuði. Svo vill til að þeir falla úr gildi nú í lok september.

4,5 milljarðar peninga­seðla með andliti Elísabetar eru í umferð í dag – samtals um 80 milljarðar punda. Í frétta­skýringu The Guardian kemur fram að talið sé líklegt að umskiptin yfir í nýja seðla og nýja mynt, með myndum af Karli konungi, muni taka að minnsta kosti tvö ár.

Er Elísabet varð drottning eftir lát föður síns árið 1952 var mynd af henni ekki sett á peninga­seðla. Það tíðkaðist ekki í þá tíð að gera slíkt. Þetta breyttist árið 1960. Þá var gefinn út 1 punda seðill með mynd af henni. Árið eftir var svo prentaður 10 skildinga­seðill með andliti hennar á. Þessi þróun hélt áfram næstu árin og drottningin var sett á fleiri seðla.

Það tekur tíma að hanna hvern seðill. Til stóð að gefa út 10 skildinga seðil á síðari hluta sjöunda áratugarins. Búið var að hanna hann og á honum var mynd af drottningunni með skraut­hatt. En svo breyttist allt. Ákveðið var að breyta peninga­kerfinu og skildingar voru aflagðir. 10 skildinga seðilinn var prentaður og gefinn út en innkallaður ekki svo löngu síðar. Ákveðið var að nýta hönnun hans á nýjan 50 pennía seðil en að lokum var sú ákvörðun tekin að gera 50 pennía mynt. Svo sá seðill var aldrei gefinn út.

Drottning – ekki kóngur – í stjórnarskrám

Elísabet II var þjóð­höfðingi í fjórtán ríkjum breska samveldisins. Í mörgum þeirra er því svo farið að orðið „drottning“ er beinlínis skrifað í stjórnar­skrána. Þetta mun þýða, segir í frétt Guardian, að gera þarf stjórnar­skrár­breytingar svo vísað sé í arftaka hennar, Karl III konung.

En það er ekki endilega víst að það verði gert. Stjórnar­skránni verður ef til vill breytt á t.d. Jamaíka og í Belís, tveimur ríkjum samveldisins í Karabíska-hafinu, en tækifærið jafnvel nýtt til að rjúfa tengslin við Bretland. Rétt eins og Barbados gerði í fyrra. Í báðum fyrr­nefndum löndum gengur nú öflug bylgja sjálfstæðis­baráttu yfir.

Einnig kann að vera að sambands­ríki á borð við Papúa Nýju-Geníu, Solomon-eyjar, Túvalú, Atígva og Barbúda, Bahama-eyjar, Grenada, Sankti Kitts og Nevis sem og fleiri þurfi að breyta sínum stjórnar­skrám, vilji þau að Karl hafi vald til að skipa þar ríkis­stjóra. Í þessum ríkjum er ákveðin andstaða við samveldið en hún er ekki almenn – að minnsta kosti ennþá.

Hins vegar þarf ekki að breyta stjórnar­skrám Ástralíu, Kanada og Nýja-Sjálands þar sem í þeim er gert ráð fyrir að arftaki bresku krúnunnar verði sjálf­krafa þjóð­höfðingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár