Warren Buffett brást strax við ósönnum ummælum Trump

Fjár­festirinn þekkti, Warren Buffett, birti í gær upplýsingar um skatta­skýrslur sínar alveg frá árinu 1944 en samkvæmt þeim þá sagði Donald J. Trump ósatt, þegar hann fullyrti í sjónvarp­kappræðum við Hillary Clinton á sunnu­daginn að Buffett væri einn þeirra sem nýtti sér glufur í lögum til að greiða ekki skatta í ríkissjóð og hefði meðal annars gert það árið 1995.

Þetta er ekki rétt hjá Trump.

Buffett, sem er forstjóri fjáfestingafélagsins Berkshire Hathaway og einn valda­mesti einstaklingurinn á bandarískum hlutabréfa­markaði, sagði í yfir­lýsingu að hann ætti afrit af öllum sínum skatta­skýrslum og hefði greið skatt í samræmi við lög, án þess að nýta sér frádráttar­möguleika til hagsbóta fyrir sig, í 72 ár í röð. Fyrsta árið sem hann greiddi skatt var árið 1944, en þá var hann þrettán ára.

Í fyrra nam hans persónu­lega innkoma 11,4 milljónum Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 1,2 milljörðum króna. Af þeim fjármunum valdi hann að greiða 3,4 milljónir Bandaríkja­dala í góðgerðar­starf, eða sem nemur um 450 milljónum króna. Sjálfur greiddi hann 1,8 milljónir Bandaríkja­dala, um 220 milljónir króna, í alríkis­skatt.

Buffett, sem er orðinn 86 ára gamall, hefur gefið það út að hann ætli sér að gefa frá sér meira en 95 prósent af eignum sínum í góðgerðar­starf, þegar hann hættir störfum.

Eignir Warren Buffetts eru nú metnar á yfir 60 milljarða Bandaríkja­dala, en heildar­eignir Berkshire Hathaway nema yfir 520 milljörðum Bandaríkja­dala.

Buffett hefur ekki farið leynt með það, að hann styður Hillary Clinton í forseta­kosningunum í Banda­ríkjunum sem fara fram 8. nóvember.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár