Umboðsmaður Alþingis segir Páleyju hafa brotið stjórnsýslulög

Lög­reglu­stjór­inn í Vest­manna­eyjum fór ekki að stjórn­sýslu­lögum við ráðn­ingu lög­reglu­full­trúa til emb­ætt­is­ins í fyrra. Þetta er nið­ur­staða umboðs­manns Alþingis.

Páley Borgþórsdóttir braut lög um stjórsýslu við ráðningu lögreglufulltrúa til lögregluembættisins í fyrra.
Páley Borg­þórs­dóttir braut lög um stjór­sýslu við ráðn­ingu lög­reglu­full­trúa til lög­reglu­emb­ætt­is­ins í fyrra. Mynd: RÚV

Páley Borg­þórs­dóttir, lög­reglu­stjóri í Vest­manna­eyjum, fór ekki að stjórn­sýslu­lögum í fyrra í ráðn­inga­ferli nýs lög­reglu­full­trúa til emb­ætt­is­ins. Samkvæmt áliti umboðs­manns Alþingis fór lög­reglu­stjór­inn ekki að lögum þegar hann neit­aði umsækj­anda um starfið um ákveðin gögn.

Forsaga máls­ins er sú að Páley aug­lýsti starf lög­reglu­full­trúa til umsóknar í júní í fyrra. RÚV greinir frá því að 17 umsóknir hafi borist, en fimm boð­aðir í við­tal. Einn umsækj­end­anna sem ekki var boð­aður í við­tal kvart­aði í kjöl­farið til umboðs­manns Alþingis vegna máls­ins. Kvörtunin byggði meðal ann­ars á þeim for­sendum að umsækj­end­anum var synjað um aðgang að fer­il­skrá þeirra sem boð­aðir voru í við­töl en fengu ekki starfið.

Í áliti umboðs­manns segir að slík gögn geti skipt veru­legu máli við úrlausn svona ágrein­ings. Lög­reglu­stjór­anum hafi verið óheim­ilt að taka ákvörðun út frá þeim án þess að bera þær undir þann sem sækir um starfið.

„Það er einnig nið­ur­staða mín að synjun lög­reglu­stjór­ans á að veita aðgang að hluta umbeð­inna gagna, þ.e. gögnum um aðra umsækj­endur sem boð­aðir voru í við­tal en þann sem var ráð­inn í starfið, hafi ekki verið byggð á réttum laga­grund­velli enda fór atviks­bundið mat á gögn­unum ekki fram eins og 17. gr. stjórn­sýslu­laga áskilur, sbr. einnig meg­in­reglu 2. mgr. 16. gr. sömu laga.“

Þá segir einnig að and­mæla­réttur hafi ekki verið virtur.

Páley hefur verið tölu­vert í umræð­unni und­an­farið eftir að greint var frá því að emb­ættið í Vest­manna­eyjum ætl­aði ekki að til­kynna fjöl­miðlum um fjölda kyn­ferð­is­brota á Þjóð­há­tíð í Eyjum fyrr en ein­hvern tím­ann eftir Versl­un­ar­manna­helgi. Embættið er ekki með sömu verk­lags­reglur og rík­is­lög­reglu­stjóri mælist til, en ein­ungis eitt annað lög­reglu­um­dæmi vinnur með sama hætti, Lög­reglan á Suð­ur­landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár