Starfslok stjórnenda kostuðu SKEL 60 milljónir á fyrstu þremur mánuðum ársins

SKEL fjár­festingar­félag hagnaðist á því að selja fasteignir til fasteigna­þróunar­félags sem það á nú 18 prósent hlut. Næst stærsti eigandinn er móður­félag stærsta eiganda SKEL, sem er stýrt af Jóni Ásgeiri Jóhannessyni.

Jón Ásgeir Jóhannesson er stjórnarformaður SKEL
Jón Ásgeir Jóhann­es­son er stjórn­ar­for­maður SKEL Mynd: Skeljungur / Hörður Sveinsson

SKEL fjár­festinga­félag hagnaðist um 3,3 milljarða króna eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi 2022. Þar skiptir öllu máli að félagið seldi fasteignir sem hýsa starfsemi dóttur­félaga þess til fasteigna­félagsins Kaldalóns. Sölu­hagnaður af fasteigna­sölu á ársfjórðungnum var 4,1 milljarður króna.

SKEL fékk greitt fyrir fasteignirnar með reiðufé upp á 3,6 milljarða króna og með nýjum hlutum sem gefnir voru út í Kaldalóni. Eftir viðskiptin, sem voru frágengin síðasta dag mars­mánaðar, er SKEL stærsti hluthafi fasteigna­þróunar­félagsins, sem er skráð á First North markaðinn, með 18,05 prósent eignar­hlut. Næst stærsti eigandinn er Strengur Holding, móður­félags Strengs hf. sem er meirihluta­eigandi í SKEL og er stýrt af Jóni Ásgeiri Jóhannessyni. Strengur Holding á 12,76 prósent hlut í Kaldalóni.

Þetta kemur fram í árshluta­reikningi SKEL fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins.

Forstjórinn sagði af sér í febrúar

Þar segir líka að rekstrar­kostnaður félagsins hafi litast af kostnaði vegna uppskiptingar og starfsloka­kostnaði, sem hafi verið 60 milljónir króna á tíma­bilinu. Tveir stjórn­endur hættu störfum hjá SKEL á fyrstu mánuðum ársins. Fyrst sagði þáverandi forstjóri, Árni Pétur Jónsson, af sér í febrúar. Í til­­kynn­ing­unni sem hann sendi frá sér sagði Árni Pétur, sem var með um sjö milljónir króna á mánuði í heildar­laun á árinu 2021, að honum hafi borist tölvu­­póstur frá fyrrum sam­­starfs­­konu hans í öðru fyr­ir­tæki, þar sem hann var yfir­­­maður hennar fyrir um 17 árum síð­­­an. „Þar greinir hún frá því að í dag upp­­lifi hún sam­­skipti okkar á þessum tíma með þeim hætti að ég hafi gengið yfir ákveðin mörk.“

Hann sagði að konan hafi ekki sakað hann um ofbeldi, áreiti eða ein­hvers konar brot gegn lög­­um, heldur hafi verið um að ræða valda­ó­­jafn­­vægi og ald­­ur­s­mun. „Þrátt fyrir að ég hafi á engan hátt gerst brot­­legur við lög þá átta ég mig á því að við­mið og við­horf hafi breyst í sam­­fé­lag­inu og er það vel,“ segir Árni Pétur í til­­kynn­ingu sinni. „Met ég stöð­una þannig að mál þetta kunni að valda fyr­ir­tæk­inu og sam­­starfs­­fólki óþæg­ind­­um. Ég hef því óskað eftir að láta af störfum sem for­­stjóri hjá Skelj­ungi hf.“

Ólafur Þór Jóhann­es­son, sem starf­aði áður sem fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­sviðs og sem aðstoð­ar­for­stjóri Skelj­ungs, tók við starf­inu af Árna Pétri. Hann lét svo af störfum í síðasta mánuði þegar tilkynnt var að Ásgeir Helgi Reyk­fjörð Gylfa­son, þá aðstoð­ar­banka­stjóri Arion banka, hefði verið ráð­inn for­stjóri félags­ins og að Magnús Ingi Ein­ars­son, þá fram­kvæmda­stjóri banka­sviðs Kviku banka, hefði verið ráð­inn fjár­mála­stjóri þess. Ásgeir mun hefja störf hjá SKEL 9. júlí næst­komandi.

Mikla athygli vakti að bæði Ásgeir Helgi og Magnús Ingi fengu kaup­rétti um hluti í félag­inu í sam­ræmi við kaup­rétta­á­ætlun þess sem sam­þykkt var á síð­asta aðal­fundi.

Sam­kvæmt þeirri áætl­un, sem tók gildi þann 10. mars, var SKEL heim­ilt að úthluta kaup­rétti til lyk­il­stjórn­enda félags­ins af fimm pró­sentum af útgefnu heild­ar­hlutafé þess. Mark­aðs­verð þess­ara kauprétta var á þessum tíma um 1,6 millj­arðar króna.

Þessi kaup­rétt­ar­heim­ild, sem gildir til árs­ins 2027, er full­nýtt í nýjum samn­ingum við Ásgeir Helga og Magnús Inga. Sam­kvæmt til­kynn­ingu sem SKEL sendi frá sér nam virði kaup­réttar Ásgeirs 1,02 millj­örðum króna, á meðan virði kaup­réttar Magn­úsar Inga nam 572 millj­ónum króna.

SKEL stærsti eigandi Kaldalóns

SKEL fjár­festinga­félag hét áður Skeljungur í 93 ár. Nafni og tilgangi félagsins var breytt í byrjun þess árs samhliða því að tilkynnt var um 6,9 milljarða króna hagnað á síðasta ári. Sá hagn­aður var nær allur til­kom­inn vegna sölu á fær­eyska dótt­ur­fé­lag­inu P/F Magn á árinu 2021, en bók­færð áhrif þeirrar sölu á tekjur Skelj­ungs í fyrra voru 6,7 millj­arðar króna.

Í fjár­festa­kynn­ingu sem birt var í kom fram að Skelj­ungur yrði frá og með febrúar síðastliðnum rekið sem fjár­fest­inga­fé­lag og beri nafnið SKEL fjár­fest­inga­fé­lag. Þar með lauk sögu olíu­fé­lags­ins Skelj­ungs á Íslandi, en hún hófst árið 1928.

Streng­ur, eign­ar­halds­fé­lag sem stjórn­ar­for­mað­ur­inn Jón Ásgeir fer fyr­ir, á 50,1 pró­sent hlut í félag­inu og hefur því tögl og hagldir innan þess. SKEL byrjar til­veru sínu með 12 millj­arða króna í hand­bært fé, um 50 pró­sent eig­in­fjár­hlut­fall og ein­ungis tvo millj­arða króna í vaxta­ber­andi skuld­um.

Gengi bréfa í félaginu hækkaði um 18,3 prósent á fyrsta ársfjórðungi en handbært fé þess lækkaði niður í 8,9 milljarða króna. Eiginfjár­hlutfallið hefur hins vegar styrkst með sölunni til Kaldalóns og er nú 79,4 prósent.

Seldu í Íslandsbanka en byggðu upp stöðu í VÍS

SKEL var á meðal þeirra sem tóku þátt í lokuðu útboði á 22,5 prósent hlut í Íslands­banka í mars. Alls keypti SKEL fyrir um 450 milljónir króna. Félagið seldi þann hlut með 32 milljóna króna hagnaði um mánuði síðar og bætti samhliða við stöðu sína í trygginga­félaginu VÍS.

Sú staða er ekki öllum skýr þegar horft er á hluthafalista VÍS enda stór hluti eignarinnar, alls 4,8 prósent hlutur, í formi fram­virkra samninga við banka og því skráður á þá. Miðað við það að Arion banki, fyrr­verandi vinnu­staður verðandi forstjóra SKEL, er eini stóri bankinn sem er skráður fyrir stórum hlutum í VÍS má ætla að fram­virkir samningar SKEL séu að uppistöðu hjá þeim banka.

Í tilkynningu til Kaup­hallar sem birt var 26. apríl síðastliðinn kom fram að SKEL væri í reynd fjórði stærsti hlut­hafinn í VÍS með rúmlega 7,3 prósent eignar­hlut. Einn annar stór einka­fjárfestir er í VÍS, félagið Sjávarsýn í eigu Bjarna Ármanns­sonar sem á 6,97 prósent hlut. Aðrir stórir eigendur eru stofnana­fjárfestar, aðallega íslenskir lífeyris­sjóðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár