Tólf látnir eftir skelfinguna í Berlín

Tala látinna hækkaði þegar líða tók á kvöldið. Margir þeirra 48 sem slösuðust eru enn á gjörgæslu.

Tólf eru látnir og 48 slasaðir eftir að vöru­flutninga­bifreið var ekið inn í mannmergð á jóla­markaði í miðborgar Berlínar, skömmu eftir klukkan sjö í gærkvöldi að staðar­tíma.

Markaður­inn stend­ur við Kaiser Wil­helm minn­ing­ar­kirkj­una sem er tákn fyr­ir frið meðal Berlín­ar­búa.

Einn hefur verið hand­tekinn, en grunur leikur á því að hann hafi rænt vöru­flutninga­bifreiðinni frá pólsku flutninga­fyrirtæki og keyrt henni inn í jóla­markaðinn. Mildi þykir að ekki fór enn verr þrátt fyrir að afleiðingarnar hafi verið skelfilegar, en mikill mann­fjöldi var saman­kominn á jóla­markaðnum.

Samkvæmt fréttum breska ríkis­útvarpsins BBC, eru margir þeirra sem slösuðust með alvarleg meiðsl.

Enn hefur ekki verið opinber­lega staðfest, að um hryðjuverka­árás hafi verið að ræða, en að sögn BBC hefur lögreglan í haldi mann sem talið er að beri ábyrgð á verknaðinum. Öruggt er talið að um viljaverk hafi verið að ræða þegar bifreiðinni var ekið í gegnum markaðinn.

Angela Merkel, kanslari Þýska­lands, sagði allt Þýskaland harma árásina og að hugurinn væri hjá þeim sem ætti um sárt að binda. Hún sagði of snemmt að segja til um hverjar ástæðurnar væru og hver bæri ábyrgð á verknaðinum. Allt yrði gert til að upplýsa um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár