Ríkisendurskoðun gerir stjórnsýsluúttekt vegna WOW air

Beiðni lögð fram í umhverfis- og sam­göngu­nefnd um úttekt á hlut­verki Sam­göngu­stofu og Isavia í málum WOW air hefur verið sam­þykkt. Nið­ur­staða á að liggja fyrir í haust.

Rík­is­end­ur­skoðun hefur verið falið að gera skýrslu um aðkomu Sam­göngu­stofu, eft­ir­lits­að­ila með flug­rekstri á Íslandi, og opin­bera fyr­ir­tæk­is­ins Isavia, sem rekur m.a. Kefla­vík­ur­flug­völl, að starf­semi og rekstri WOW air í aðdrag­anda og kjöl­far gjald­þrots flug­fé­lags­ins. Skýrsl­unni á að skila í haust.

Þetta var ákveðið á fundi umhverfis- og sam­göngu­nefndar í gær en beiðnin um úttekt­ina var lögð fram af Helgu Völu Helga­dóttur, þing­manni Sam­fylk­ing­ar­innar.

Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Aðkoma stjórnvalda skoðuð ofan í kjölinn

Í grein­ar­gerð sem fylgdi með beiðn­inni segir að aðkomu stjórn­valda að málum WOW air þyrfti einnig að skoða ofan í kjöl­inn og hvaða heim­ildir Isavia hafi til að veita flug­rek­endum greiðslu­frest á lend­ingar- og þjón­ustu­gjöldum, líkt og WOW air fékk.

Í beiðn­inni er sér­stak­lega óskað þess að kannað verði hvernig fyr­ir­greiðslur Isavia við WOW air rími við sam­keppn­is­lög og rík­is­að­stoð­ar­reglur EES-samn­ings­ins.

Í Frétta­blað­inu segir að í beiðn­inni sé óskað eftir úttekt á því hvernig Sam­göngu­stofu hafi tek­ist að upp­fylla lög­bundið hlut­verk sitt og aðrar lög­bundnar skyldur í mál­efnum sem tengj­ast WOW air. Í úttekt­inni eigi að draga fram hvort að verk­ferlum hafi verið fylgt varð­andi ákvörð­un­ar­töku. Þá verður aðkoma Isavia einnig skoðuð „út frá hag­kvæmni, með­ferð og nýt­ingu rík­is­fjár,“ sam­kvæmt frétt blaðs­ins. Auk þess verður kannað hvort að unnið hafi verið eftir verk­ferlum og sam­þykktum Isavia í við­skiptum þess við WOW air.

Dauðastríð fyrir opnum tjöldum

WOW air varð gjald­þrota 28. mars síð­ast­lið­inn. Þá hafði félagið barist í dauða­stríði fyrir opnum tjöldum frá því síð­sum­ars 2018 og átt í miklum erf­ið­leikum allt frá haustinu 2017.

Sam­göngu­stofa er sú eft­ir­lits­stofnun sem gefur út flug­rekstr­ar­leyfi og á að hafa eft­ir­lit með því að þau flug­fé­lög sem fá slíkt séu rekstr­ar­hæf. Stofn­unin hefur verið víða harð­lega gagn­rýnd fyrir að grípa ekki fyrr inn í rekstur WOW air þegar ljóst var að eig­in­fjár­staða félags­ins var afar bág­borin og illa gekk fyrir það að fá nýja fjár­festa að rekstr­inum.

Isavia veitti WOW air sömu­leiðis umtals­verðan slaka vegna skulda sem safn­ast höfðu upp vegna van­gold­inna lend­ingar- og þjón­ustu­gjalda á Kefla­vík­ur­flug­velli. Þegar WOW air fór í þrot stóðu þær skuldir í um tveimur millj­örðum króna. Óljóst er hversu mikið af þeim fjár­munum munu inn­heimt­ast en Isavia kyrr­setti flug­vél í eigu leigu­sala WOW air og von­að­ist til að geta krafið hann um greiðslu á skuld­inni. Tekist er á um það mál fyrir dóm­stólum.

Skúli vill WOW 2.0

Skúli Mog­en­sen, stofn­andi og fyrr­ver­andi for­­stjóri flug­­­fé­lags­ins WOW a­ir, sagði í erindi sem hann hélt á við­burði Startup Iceland í Hörpu í vik­unni að ef hann fengi tæki­færi til að stofna annað flug­fé­lag þá myndi hann gera það, þó ekki endi­lega sem for­stjóri. Nýja flug­fé­lagið myndi hann kalla WOW air, „enda frá­bært vöru­merki“ að hans mati.

Skúli sagði í erindi sínu að við fall WOW air hafi hann orðið mjög reið­ur. Og að hann sé enn reið­ur. „Það er ekki dagur – eða klukku­tími – sem ég hugsa ekki um þetta,“ sagði hann. En að því sögðu þá velti hann því fyrir sér hvað taki nú við. „Hvað getum við gert núna? Hver eru tæki­fær­in.“.

Hann sagði að það yrði slæmt ef þekk­ingin og reynslan sem afl­að­ist við rekstur og upp­bygg­ingu WOW air yrði ekki nýtt. Ekki væri hægt að byggja upp slíka þekk­ingu auð­veld­lega aftur og því taldi hann að nú ætti að nýta tæki­fær­ið. Ísland verði að vera með lággjalda­flug­fé­lag.

„Ég ætla ekki endi­lega að gera þetta á morgun en ég vil fá tæki­færi til að gera þetta aft­ur,“ sagði Skúli og bætti því við að honum sé aftur farið að leið­ast. Hann benti enn fremur á að nú væri sam­dráttur í íslensku sam­fé­lagi og að ein­hver yrði að gera eitt­hvað í þessum mál­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár