Styrkur ríkisfyrirtækis við WOW air tapast

Í gær komst dóm­stóll að því að leigu­sali WOW air þurfi ekki að greiða skuld hins gjald­þrota félags við rík­is­fyr­ir­tækið Isavia. Því virð­ast skatt­greið­endur, eig­endur Isavia, sitja uppi með það tap sem verður.

Þótt WOW air sé gjald­þrota þá eru enn margir þræðir í sögu félags­ins óhnýttir. Nú virð­ist blasa við að Isavia, sem er í eigu íslenskra skatt­greið­enda, muni tapa um tveimur millj­örðum króna á því að veita félag­inu fyr­ir­greiðslu og hluti þeirra fjár­festa sem keypti skulda­bréf í útboði WOW air í sept­em­ber telja að þeir hafi verið blekktir.

Á meðan súrna eft­ir­stand­andi eignir WOW air dag frá degi og afar ólík­legt er orðið að af end­ur­reisn þess verði.

Skuldabréfaútboðið sem var ekki eins og það sýndist

Þann 15. ágúst 2018 birti Kjarninn fjár­festa­kynn­ingu sem norska verð­bréfa­fyr­ir­tækið Pareto Securites hafði útbúið fyrir WOW air. Þar var hægt að sjá nákvæm­ari upp­lýs­ingar um fjár­hag WOW air en höfðu birst áður.

For­svars­menn Pareto voru ósáttir við birt­ing­una, og sendu tölvu­póst til blaða­manns Kjarnans, þar sem þess var kraf­ist að upp­lýs­ing­arnar yrðu teknar taf­ar­laust úr birt­ingu. Ef það yrði ekki gert þá myndi Pareto grípa til við­eig­andi laga­legra aðgerða.

Kjarninn benti á það í svari, að Pareto hefði sjálft birt kynn­ing­una á opnu svæði á inter­net­inu, og því væri krafa fyr­ir­tæk­is­ins ekki við­eig­andi. Auk þess væri það mat Kjarnans að upp­lýs­ing­arnar ættu erindi við almenn­ing og því yrði ekki orðið við því að taka upp­lýs­ing­arnar úr birt­ingu. Eftir það heyrð­ist ekki meira frá Pareto.

Sú mynd sem þar var dregin upp var frekar dökk. WOW air átti aug­ljós­lega ekki nægt eigið fé til að takast á við þær áskor­anir sem félagið var þegar að takast á við, og sann­ar­lega ekki til að mæta þeim sem voru framundan. Eigið fé þess var komið undir fimm pró­sent í júní 2018.

Pareto hafði það hlut­verk að ná í brú­ar­fjár­mögnun fyrir WOW air þangað til að hægt yrði að skrá félagið á markað. Það átti að gera í gegnum skulda­bréfa­út­boð. Til stóð að ná í 56 til 112 millj­ónir dala. Auk Pareto voru Arion banki og Arctica Finance ráð­gjafar WOW air við fram­kvæmd skulda­bréfa­út­boðs­ins.

Verulega erf­ið­lega gekk að loka skulda­bréfa­út­boð­inu, en það hafð­ist þó skömmu eftir miðjan sept­em­ber í fyrra. Alls náð­ist að safna 60 millj­ónum evra.

Fljót­lega varð ljóst að það fjár­magn nægði alls ekki til og þá hófust til­raunir til að finna kaup­anda að WOW air. Icelandair fór tví­vegis í við­ræður um að kaupa félagið og við­ræður við Indigo Partners stóðu yfir mán­uðum saman. Hvorugur aðil­inn taldi það þó á end­anum skyn­sam­legt að fjár­festa í WOW air.

Telja sig blekkta

Þegar skulda­bréfa­út­boð­inu var lokað á sínum tíma var ekki greint frá því opin­ber­lega hverjir hefðu keypt. Einungis sagt frá því að um inn­lenda og erlenda aðila væri að ræða. Síðar kom í ljós að Skúli Mogensen, eig­andi og for­stjóri WOW air, hafði tekið þátt ásamt nokkrum af helstu kröfu­höfum félags­ins. Á meðal þeirra var Arion banki, einn stærsti kröfu­hafi WOW air, sem keypti skulda­bréf fyrir 4,6 millj­ónir evra.

Nú telja margir þeirra fjár­festa sem settu raun­veru­legt fjár­magn í að kaupa skulda­bréf WOW air að þeir hafi verið blekktir í útboð­inu. Sumir þeirra telja svo illa á sér brotið að um fjár­svik sé að ræða.

Þeim hafi ekki verið kunn­ugt um að stærstur hluti þeirrar fjár­hæðar sem safn­að­ist í útboð­inu hafi ekki verið nýtt fjár­magn, heldur umbreyt­ing á kröfum í skulda­bréf. Það átti til að mynda við um þær 4,6 millj­ónir evra sem Arion banki keypti fyrir. Samhliða þeim kaupum hafi verið gerður bak­samn­ingur milli bank­ans og WOW air um að fella niður yfir­drátt­ar­skuld upp á sömu upp­hæð. Arion breytti því í raun yfir­drátt­ar­skuld í skulda­bréf, en setti ekk­ert nýtt fé inn í félagið.

Skulda­bréfa­eig­endur sem settu raun­veru­legt fé inn í WOW air hafa óskað eftir því að fá upp­lýs­ingar frá skipta­stjórum WOW Air hverjir skil­málar ábyrgð­ar­trygg­ingar stjórn­enda félags­ins séu, þar sem að þeir telja að stjórn­end­urnir hafi mögu­lega bakað sér per­sónu­lega skaða­bóta­skyldu á grund­velli þess að hafa ekki veitt full­nægj­andi upp­lýs­ingar um stöðu WOW air og eðli skulda­bréfa­út­boðs­ins þegar það fór fram.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækið Deloitte nú að vinna að úttekt á þessum málum og fleirum sem tengj­ast WOW air og á nið­ur­staða að liggja fyrir í lok júní. Sú nið­ur­staða verður síðan kynnt á skipta­fundi í búi WOW air sem fyr­ir­hugað er að halda 16. ágúst næst­kom­andi.

Isavia tapar milljörðum

Annað óleyst mál tengt WOW air er sú fyr­ir­greiðsla sem Isavia, sem er rík­is­fyr­ir­tæki, veitti félag­inu.

Isavia og WOW air gerðu sam­komu­lag um það í lok sept­em­ber 2018, skömmu eftir að skulda­bréfa­út­boði í WOW air hafði verið lokið, hvernig félagið átti að greiða upp skuld sína við Kefla­vík­ur­flug­völl. Skuld WOW air við Isavia hafði vaxið hratt mán­uð­ina á undan, og stóð í rúm­lega millj­arði króna í lok júlí 2018. Þá hafði hún tvö­fald­ast á rúmum mán­uði.

Við­skipta­blaðið greindi frá því í vik­unni, og byggði það á fund­ar­gerðum stjórnar Isavia, að mán­uði áður en greint var frá skulda­bréfa­út­boði WOW air hafi verið gefin heim­ild fyrir rekstr­ar­lána­línu og/eða yfir­drátt­ar­láni á stjórn­ar­fundi Isavia upp á tvo millj­arða króna.

Isavia taldi sig geta tryggt að skuldin feng­ist greidd með vegna þess að ákvæði loft­ferða­laga ættu að heim­ila fyr­ir­tæk­inu að kyrr­setja vél WOW air til að tryggja greiðslu gjalda sem væru gjald­fall­inn.

Þegar WOW air fór svo loks í þrot í lok mars var skuld félags­ins við Isavia um tveir millj­arðar króna. Vélin sem var kyrr­sett fyrir greiðslu þeirrar skuldar, og WOW air hafði haft til umráða, var hins vegar ekki í eigu WOW air heldur hafði félagið leigt hana. Eig­and­inn var Air Lease Corporation (ALC) og hann hafði engan áhuga á því að borga skuld WOW air til að losa vél­ina sína.

Deilur vegna þessa röt­uðu fyrir Hér­aðs­dóm Reykja­nes og í gær komst hann að þeirri nið­ur­stöðu að ALC þyrfti ekki að greiða allar þær skuldir WOW air gagn­vart Isavia sem safn­ast höfðu upp heldur ein­ungis þær skuldir sem tengd­ust beint þot­unni sem kyrr­sett var. Þær nema 87 milj­ónum króna. Haldi sú nið­ur­staða mun Isavia því tapa þorra þeirra fjár­muna sem rík­is­fyr­ir­tækið í raun lán­aði WOW air til að leyfa félag­inu að halda áfram starf­semi á síð­asta ári og fram eftir árinu 2019.

Stjórnvöld vildu ekki setja WOW í þrot

Þeir sem sitja í stjórn Isavia eru skip­aðir af stjórn­ar­mála­flokkum sem sæti eiga á Alþingi. Rík­is­stjórnin hefur auk þess verið upp­lýst um þá stöðu sem uppi var vegna skulda WOW air við Isavia síð­ustu mán­uði, en ekki var vilji til þess að grípa inn með afger­andi hætti. Stjórn­völd vildu ein­fald­lega ekki vera sá aðili sem setti WOW air í þrot.

Á bak­við þá ákvörðun lá vilji til að gefa WOW air slaka til að bjarga sér með því að finna fjár­festa eða nýja eig­endur. Tíminn sem vannst, frá síð­asta hausti og til loka mars­mán­aðar þegar WOW air fór loks í þrot, nýtt­ist líka vel sem aðlög­un­ar­tími. Umfang starf­semi flug­fé­lags­ins dróst veru­lega saman. Vélum var fækkað, starfs­fólki sagt upp og flug­leiðum hætt. Allt gerði þetta það að verkum að höggið við sjálft gjald­þrotið varð mild­ara. Þá hafði Isavia vita­skuld tekjur af starf­semi WOW air á meðan að félagið starf­aði.

En eftir stendur að rík­is­fyr­ir­tæki veitti flug­fé­lagi í sam­keppn­is­rekstri fyr­ir­greiðslu upp á tvo millj­arða króna. Fyr­ir­greiðslu sem nú virð­ist ekki verða inn­heimt­an­leg, og mun því geta flokk­ast sem tap­aður rík­is­styrkur.

Ein afleið­ingin þessa er sú að Björn Óli Hauksson, sem hafði verið for­stjóri Isavia í ára­tug, hætti störfum 17. apríl síð­ast­lið­inn. Hann hætti sam­stundis. Heim­ildir Kjarnans herma að hann hafi verið rek­inn.

Jón Ásgeir og Pálmi á meðal fundarmanna

Nánast sam­stundis og WOW air fór á haus­inn, sem gerð­ist 28. mars, byrj­uðu ýmsir að máta sig við end­ur­reisn félags­ins. Sá sem hefur borið mest á þar er Skúli Mogensen.

Í við­skipta­á­ætlun sem er dag­sett 3. apr­íl, og hefur verið dreift víða innan íslensks við­skipta­lífs í von um að ein­hverjir með fjár­muni á milli hand­anna hafi áhuga á að taka þátt í verk­efn­inu, sem stýrt ef af Skúla og nokkrum fyrr­ver­andi lyk­il­stjórn­endum WOW air, er rakið hvað myndi fel­ast í slíkri end­ur­reisn og það sem aflaga fór síð­ast með þeim afleið­ingum að WOW air fór í þrot.

Hið end­ur­reista félag átti að kaupa ýmis verð­mæti úr þrota­búi WOW air, meðal ann­ars vöru­merkið og bók­un­ar­kerf­ið. Svo var stefnt að því að taka þátt í leigu­verk­efnum í tólf vikur fyrir stórt evr­ópskt flug­fé­lag en frá júnílokum 2019 á hið end­ur­reista félag að fljúga til 13 áfanga­staða í Evr­ópu og Banda­ríkj­unum (London, Par­ís, Amster­dam, Berlín, Kaup­manna­höfn, Dublin, Tenerife, Alicante, Frank­furt, Barcelona, New York, Baltimore og Boston).

Upp­runa­lega átti að gera þetta með því að nota fimm Airbus-­vélar en strax á næsta ári á þeim að fjölga í sjö og svo í tíu vorið 2021. Sam­kvæmt áætlun átti hið nýja WOW air að geta flutt tæp­lega 600 þús­und far­þega á síð­ari helm­ing þessa árs, um 1,5 millj­ónir á næsta ári og rúm­lega tvær millj­ónir árið 2021. Til sam­an­burðar flutti WOW air 3,5 millj­ónir far­þegar í fyrra.

Verðmætin súrna

Til þess að láta þessa hug­mynd ganga upp þá hafa Skúli og teymið hans, ásamt full­trúum frá Arctica Finance, verið að funda með fjöl­mörgum fjár­festum síð­ustu vik­urn­ar. Þeim vantar nefni­lega 40 millj­ónir dali, um 4,8 millj­arða króna, til að láta dæmið ganga upp.

Enn sem komið er hefur eng­inn bitið á agnið. Mánu­dag­inn 8. apríl var hald­inn fundur í húsa­kynnum Arctica Finance þar sem fjöl­mörgum fjár­festum úr mis­mun­andi áttum var boðið að mæta og kynna sér það að fjár­festa í end­ur­reisn WOW air.

Á meðal þeirra sem sátu fund­inn, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans, var Pálmi Har­alds­son, fyrr­ver­andi eig­andi Iceland Express Jón Ásgeir Jóhann­es­son, fjár­festir­inn Guðni Eiríks­son, Bogi Guð­munds­son, stjórn­ar­for­maður Bustra­vel Iceland og ýmsir aðrir tengdir íslenskri ferða­þjón­ustu. Þar var einnig full­trúi frá KEA-hót­elum. Alls voru vel á annan tug aðila á fund­inum þegar teymið sem var á vegum Skúla og Arctica Finance var með talið. Fund­ur­inn skil­aði engri eig­in­legri nið­ur­stöðu og ekki var áhugi hjá að minnsta kosti þorra þeirra sem sátu hann að koma með fjár­muni inn í nýtt WOW air.

Við­mæl­endur Kjarn­ans úr fjár­mála­geir­anum sögðu þá að end­ur­reisnin þyrfti helst að klár­ast fyrir páska ef hún ætti að eiga ein­hverja von.

Það gerð­ist ekki og með hverjum deg­inum súrna verð­mætin sem eftir eru í þrota­búi WOW air.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið undanfarið ár