Eigandinn segir mikinn kaupáhuga á kísilverksmiðju United Silicon í Helguvík

Í febrúar sagði banka­stjóri Arion banka að litlar vonir væru um að kísil­verksmiðja United Silicon í Helguvík myndi starfa aftur. Nú segir bankinn að mikill áhugi sé á henni vegna breyttra markaðs­aðstæðna og að viðræður standi yfir við áhugasama kaupendur.

Skólfustungur var tekin af kísilverksmiðjunni í ágúst 2014. Á meðal þeirra sem tóku hana voru þáverandi forsætisráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, og þáverandi iðnaðarráðherra, Ragnheiður Elín Árnadóttir.
Skólf­ustungur var tekin af kís­il­verk­smiðj­unni í ágúst 2014. Á meðal þeirra sem tóku hana voru þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, og þáver­andi iðn­að­ar­ráð­herra, Ragn­heiður Elín Árna­dóttir. Mynd: stjornarrad.is

Stjórn­endur Arion banka segja að jákvæðar breytingar á markaði fyrir kísil hafi leitt til þess að mikill áhugi hafi skapast á eign dóttur­félags bankans, Stakks­bergs, en þar er um að ræða verksmiðju í Helguvík á Suðurnesjum sem áður var kennd við fyrir­tækið United Silicon. Á kynningu sem fór fram á markaðs­degi bankans á miðvikudag segir að viðræður við áhugasama aðila standi yfir.

Bókfært virði Stakks­bergs í bókum Arion banka var tæplega 1,7 milljarður króna í lok september síðastliðins.

Í síðasta birta árshluta­reikningi Arion banka sagði að félagið væri á loka­metrunum með nýtt umhverfismat á kísil­verksmiðjunni. Áætlaður kostnaður við þær úrbætur sem átti að ráðast í á verksmiðjunni samkvæmt úrbóta­áætlun Stakks­bergs er um 4,5 milljarðar króna. Áætlanir um breytingar á verksmiðjunni eru sagðar vera á lokastigi samþykktar.

Sagði litlar vonir um að kveikt yrði aftur á verksmiðjunni

Þetta er töluverður viðsnúningur frá því sem fram kom á uppgjörs­fundi Arion banka sem fram fór í febrúar síðastliðnum. Þar sagði Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka, að þar sem bank­inn bók­færði aðeins hrakvirði á verk­smiðj­una væri það „vís­bend­ing um að litl­ar vonir séu um að verk­smiðjan muni starfa aft­ur, á­huga­vert væri að sjá aðra og grænni starf­semi eiga sér stað þar í fram­tíð­inn­i.”

Bók­fært virði félags­ins, sem er það sama og nú, end­ur­speglaði „einkum verð­mæti lóðar og endursölu­virði tækja­bún­að­ar.“

Arion banki var stærsti kröf­u­hafi verk­efn­is­ins og tók yfir verk­smiðj­una. Til­­­gang­­ur­inn átti að vera sá að greiða úr þeim vand­­kvæðum sem voru til staðar við rekstur henn­­ar, upp­­­fylla þau leyfi sem þurfti til og selja hana síðan þegar verk­­smiðjan væri orðin starf­hæf að nýju.

Bank­inn segir í árs­reikn­ingi sínum að Stakks­berg sé nú á loka­stigi vinnu við gerð nýs umhverf­is­mats fyrir verk­smiðj­una. „Mark­mið bank­ans er að selja rekstur Stakks­bergs á grund­velli þeirrar vinnu sem unnin hefur verið í þessu skyn­i.“

Mikil and­staða íbúa við end­ur­ræs­ingu

Erfitt er þó að sjá að kís­il­málm­verk­smiðjan verði end­ur­ræst, að minnsta kosti í fyr­ir­sjá­an­legri fram­tíð. Þar ræður miklu gríð­ar­lega and­staða íbúa sem búa í nágrenni við verk­smiðj­una sem hafa kvartað mjög undan mengun sem frá henni kom á meðan að verk­smiðjan var starf­rækt.

Nýtt deiliskipu­lag er for­senda þess að end­ur­upp­bygg­ing verk­smiðj­unnar í geti átt sér stað og bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæjar hefur vald til að hafna eða sam­þykkja til­lögu að deiliskipu­lagi. Ákvörðun um hvort kís­il­málm­verið hefur starf­semi á ný er því póli­tísk og ræðst í atkvæða­greiðslu kjör­inna full­trúa.

Kjarn­inn greindi frá því í sept­em­ber í fyrra að miðað við þau svör sem bár­ust frá bæj­ar­full­trúum í Reykja­nesbæ um afstöðu þeirra til máls­ins sé ljóst að meiri­hluti núver­andi bæj­ar­stjórnar mun ekki gefa grænt ljós á það að kís­il­málm­verk­smiðjan í Helgu­vík verði end­ur­bætt, ræst að nýju og stækkuð líkt og Stakks­berg fyr­ir­hug­ar.

Frum­mats­skýrsla Stakks­bergs um end­ur­bætur og stækkun kís­il­vers­ins í Helgu­vík var aug­lýst í byrjun maí í fyrra. Í 1. áfanga er m.a. ráð­gert að reisa einn 52 metra háan skor­stein og nýta einn ljós­boga­ofn, líkt og United Silicon gerði, til fram­leiðsl­unn­ar. Að loknum 4. áfanga yrði verk­smiðjan full­byggð með fjórum ljós­boga­ofnum og tveimur 52 metra háum skor­stein­um.

Umhverf­is­stofnun sagði í umsögn sinni um frum­mats­skýrsl­una að áhrifin af starf­sem­inni yrðu á heild­ina litið tals­vert nei­kvæð. Áhrif á loft­gæði yrðu sömu­leiðis tals­vert nei­kvæð og mögu­lega veru­lega nei­kvæð. Einnig yrðu áhrif á lykta­meng­un, á vatnafar og ásýnd tals­vert nei­kvæð.

Tugir íbúa Reykja­nes­bæjar skil­uðu athuga­semdum við skýrsl­una. Í þeim var farið yfir þau nei­kvæðu heilsu­fars­legu áhrif sem verk­smiðjan hafði á starfs­tíma sínum og allir löggðust þeir gegn því að verk­smiðjan verði end­ur­ræst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár