Forsætisráðherra segir alltof snemmt að fella stóra dóma um stefnu Trumps

„Mér finnst ekkert að því í sjálfu sér að það komi fram á sjónar­sviðið af og til einstak­lingar sem eru ekki alveg steyptir úr sama mótinu og allir fyrir­renn­arar,“ sagði Bjarni Benediktsson í Silfrinu í dag.

Bjarni Benediktsson forsætis­ráðherra telur að umræðan um Donald Trump Bandaríkja­forseta og ímynd Banda­ríkjanna sé ekki að öllu leyti sanngjörn. Of snemmt sé að fella stóra dóma um stefnu hins nýja forseta. Þetta kom fram í viðtali við Bjarna í Silfrinu í dag, en þátturinn er í umsjá Egils Helga­sonar og Fanneyjar Birnu Jóns­dóttur.

Aðspurður hvort hann hefði áhyggjur af þróuninni í alþjóða­málum sagði Bjarni: „Já og nei. Mér finnst það vera áhyggju­efni hvernig ímynd Banda­ríkjanna er akkúrat í augna­blikinu og ég er ekki viss um að það sé allt alveg sann­gjarnt sem sagt er í þeirri umræðu. Við sjáumt.d. forsíður þessara stóru blaða í Evrópu þessa dagana líkja Trump við hrottalegustu morðingja úr röðum ISIS, með ákveðinni mynd­líkingu, mér finnst nú vera of langt gengið víða.“ Vísaði hann þar líklega til forsíðu þýska blaðsins Der Spiegel sem sýnir Trump halda á afskornu höfði Frelsis­styttunnar og blóði drifnum hníf.

Bjarni viðurkenndi að viss atriði í tilskipun Trumps um að meina fólki frá ákveðnum löndum um komu til Banda­ríkjanna væru sláandi.„Bandaríkja­forseti leggur blátt bann við flótta­mönnum frá Sýrlandi sem er nýtt sem er býsna afdrifarík ákvörðun. Svo eru tekin til endur­skoðunar þessi skilyrði fyrir því að menn komi til Banda­ríkjanna,“ sagði Bjarni og benti á að Trump hefði einnig aftur­kallað vegabréfs­áritanir. 

„Málið verður að þola einhverja efnislega umræðu, nákvæmlega hvað hann er að gera í innflytjenda­málum og það sem slær mann er það sem dómstóllinn fettir fingur út í. Það virðist vera að þarna sé verið að flokka fólk eftir trúar­brögðum,“ sagði Bjarni. 

„Ég hef áhyggjur af þessari spennu sem ákvarðanir hans hafa valdið. En mér finnst ekkert að því í sjálfu sér að það komi fram á sjónar­sviðið af og til einstaklingar sem eru ekki alveg steyptir úr sama mótinu og allir fyrirrennarar, sem hafa alla sinn æviferil verið þáttakendur í stjórnmálalegri starfsemi og svo framvegis. Þarna kemur maður á þessum aldri, í fyrsta sinn að stíga fyrir alvöru inn á vettvang stjórn­málanna og mörg af hans vinnu­brögðum bera þess merki, hann er ekki mjög diplómat­ískur forseti. Mér finnst alltof snemmt hins vegar að fara að fella þessa stóru dóma sem eru gerðir um hans forseta­stefnu.“ 

„Mér finnst alltof snemmt hins vegar að fara
að fella þessa stóru dóma sem eru gerðir
um hans forseta­stefnu“

Ítarlega er fjallað um Donald Trump og stefnu hans í forseta­embætti í nýjasta tölublaði Stundarinnar. Stefna Trumps lá að miklu leyti fyrir áður en hann var kosinn. Í kosninga­baráttu sinni lofaði hann að banna múslimum að ferðast til Banda­ríkjanna tíma­bundið, skera verulega niður útgjöld til umhverfis­verndar­mála og alþjóðlegrar samvinnu en auka fjár­framlög í herinn. Þá sagðist hann ætlað að auka frelsi til skot­vopnaeignar, reisa múr við landamæri Mexíkó og krefjast þess að Mexíkó tæki á sig kostnaðinn, og lækka skatta, einkum á fyrirtæki og tekju­hæstu hópa Banda­ríkjanna. Hér má lesa úttekt Stundarinnar í heild. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár