Vilja kanna sameiningu við annað hvort Húnaþing eða Stykkishólm og Helgafellssveit

Sveit­ar­stjórn Dala­byggðar ætlar að þreifa fyrir sér með mögu­lega sam­ein­ingu við Húnaþing vestra ann­ars vegar og Stykk­is­hólmsbæ og Helga­fells­sveit hins vegar. Er það í takti við nið­ur­stöðu íbúa­fundar um málið.

Búðardalur er stærsti byggðarkjarninn í Dalabyggð.
Búð­ar­dalur er stærsti byggð­ar­kjarn­inn í Dala­byggð. Mynd: Af vefnum Visit West Iceland

Sveit­ar­stjórn Dala­byggðar ætlar að bjóða sveit­ar­stjórn Húna­þings vestra ann­ars vegar og sveit­ar­stjórnum Stykk­is­hólms­bæjar og Helga­fells­sveitar hins vegar til fundar til að ræða hvort að hefja skuli við­ræður um mögu­lega sam­ein­ingu við Dala­byggð.

Leiði þeir fundir í ljós að vilji sé til sam­ein­ing­ar­við­ræðna verður tekin afstaða til þess hvort hafnar verði form­legar eða óform­legar sam­ein­ing­ar­við­ræður. Þá verður ákveð­inn tímara­mmi fyrir þær við­ræður og óskað eftir fram­lagi úr Jöfn­un­ar­sjóði sveit­ar­fé­laga til að styðja við verk­efnið.

Þetta var sam­þykkt á fundi sveit­ar­stjórnar Dala­byggðar í vik­unni þar sem nið­ur­stöður val­kosta­grein­ingar vegna skoð­unar á sam­ein­ing­ar­kostum var lögð fram.

Í frum­varpi til laga um breyt­ingar á sveit­ar­stjórn­ar­lögum kemur fram að lág­marks íbúa­fjöldi sveit­ar­fé­lags sé 1.000. Hafi íbúa­fjöldi verið lægri en það í þrjú ár sam­fleytt skuli ráð­herra eiga frum­kvæði að því að sam­eina það öðru eða öðrum nær­liggj­andi sveit­ar­fé­lögum. Fjölda­mörkin hafa verið umdeild og í fréttum RÚV á fimmtu­dag sagð­ist Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, vera til­bú­inn að falla frá ákvæði um lög­bund­inn lág­marks­fjölda íbúa og yrðu 1.000 manna mörkin þá frekar við­mið en skylda. Þá sagð­ist hann einnig til­bú­inn að skoða hug­myndir um hvernig ná mætti mark­miðum frum­varps­ins fram án þess að sú frum­kvæð­is­skylda verði lögð á ráð­herra að grípa til aðgerða fari íbúa­fjöld­inn undir ákveðna tölu.

Íbúar í Dala­byggð eru í dag 673 tals­ins. Stærsti byggð­ar­kjarn­inn er Búð­ar­dalur.

Verk­efn­is­hópur um sam­ein­ing­ar­mál í Dala­byggð lagð­ist með aðstoð ráð­gjafa­fyr­ir­tækis í skoðun á sam­ein­ing­ar­mögu­leikum og lagði mat á ell­efu sveit­ar­fé­lög í því sam­bandi með það að mark­miði að greina styrk­leika, veik­leika og tæki­færi Dala­byggðar ef til sam­ein­ingar sveit­ar­fé­lags­ins kemur. Ákveðið var að kynna sex val­kosti á íbúa­fundi:

Vesturland:

Borg­ar­byggð, Dala­byggð, Eyja- og Mikla­holts­hreppur og Skorra­dals­hreppur.

Breiðafjörður:

Dala­byggð, Eyja- og Mikla­holts­hreppur, Grund­ar­fjarð­ar­bær, Helga­fells­sveit, Reyk­hóla­hreppur og Stykk­is­hólmur.

Dalir, Stykkishólmur og Helgafellssveit:

Dala­byggð, Helga­fells­sveit og Stykk­is­hólmur.

Dalir, Strandir, Reykhólar:

Árnes­hreppur, Dala­byggð, Kald­rana­nes­hreppur, Reyk­hóla­hreppur og Stranda­byggð.

Dalir, Strandir, Reykhólar og Húnaþing:

Árnes­hreppur, Dala­byggð, Húnaþing Vestra, Kald­rana­nes­hreppur, Reyk­hóla­hreppur og Stranda­byggð.

Dalir og Húnaþing:

Dala­byggð og Húnaþing vestra.

Verk­efn­is­hóp­ur­inn leggur til að áherslur Dala­byggðar í sam­ein­ing­ar­við­ræðum verði á að inn­viðir í Dala­byggð standi jafnir innviðum í þeim sveit­ar­fé­lögum sem mögu­lega sam­ein­ast. Í því felst að grunn­þjón­usta, svo sem fræðslu­þjón­usta, aðstaða til íþrótta­iðk­unar, sér­fræði­þjón­usta við skóla, fólk með fötlun og aðra hópa, verði bætt, en ekki tak­mörkuð. Í Dala­byggð verði starfs­stöð stjórn­sýslu. Áhrif og aðkoma heima­fólks að nær­þjón­ustu­verk­efnum og stefnu­mótun verði tryggð.

Ákvörðun sveit­ar­stjórnar Dala­byggðar að kanna frekar mögu­lega sam­ein­ingu við Húnaþing vestra ann­ars vegar og Stykk­is­hólms­bæjar og Helga­fells­sveitar hins vegar, rímar við nið­ur­stöður íbúa­fundar þar sem kosið var um fram­komna val­kosti.

Í grein­ingu og mati á mögu­legri sam­ein­ingu Dala­byggðar og Húna­þings vestra segir að lítil hefð sé fyrir sam­starfi sveit­ar­fé­lag­anna í dag. Hins vegar séu sam­eig­in­legir hags­munir í umhverfis- og skipu­lags­málum, íbúa­þróun sé í jafn­vægi, hjá báðum sveit­ar­fé­lög­unum sé góður rekstr­ar­af­gangur, fjár­fest­inga­geta góð og skulda­hlut­fall um 60 pró­sent. Þá sé áhersla lögð á mat­væla­fram­leiðslu í þeim báðum, að vöxtur í ferða­þjón­ustu hafi hingað til verið hægur og að bæta þurfi sam­göngur um Hrúta­fjörð. Íbúa­fjöld­inn er sam­an­lagður 1.854.

Hvað við­kemur mögu­legri sam­ein­ingu Dala, Stykk­is­hólms og Helga­fells­sveitar kemur fram í val­kosta­grein­ing­unni að íbúa­fjöld­inn yrði sam­an­lagður 1.936. Hefð er fyrir sam­starfi þess­ara þriggja sveit­ar­fé­laga og þau eiga sam­eig­in­legra hags­muna að gæta í umhverfis- og skipu­lags­málum. Þá sé rekstr­ar­af­gangur góður, fjár­fest­inga­geta ágæt en skulda­hlut­fall um 109 pró­sent. Atvinnu­líf innan svæð­is­ins er fjöl­breytt og þar er m.a. að finna rann­sókn­ar­setur. Orðið hefur vöxtur í ferða­þjón­ustu en bæta þurfi sam­göngur um Skóg­ar­strönd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár