Miðstjórn ASÍ fer fram á rannsókn á ríkisstuðningi við fyrirtæki í faraldrinum

Miðstjórn ASÍ krefst þess að meðferð opinberra fjármuna í tengslum við stuðnings­úrræði til fyrir­tækja vegna áhrifa faraldursins verði rannsökuð. Dæmi séu um að fyrirtæki séu „beinlínis að greiða út arð fyrir skattfé“.

Drífa Snædal er forseti Alþýðusambands Íslands.
Drífa Snædal er for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands. Mynd: Bára Huld Beck

Miðstjórn Alþýðu­samband Íslands krefst þess að fram fari rannsókn á meðferð opinberra fjármuna í tengslum við stuðnings­úrræði til fyrir­tækja vegna efnahagslegra áhrifa COVID- faraldursins. Þetta kemur fram í ályktun sem miðstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag og segir þar að það sé „eðlileg og réttmæt krafa að þessir þættir verði rann­sakaðir“, enda hafi óheyrilegum fjármunum verið veitt til stuðnings fyrir­tækja.

„Sum þeirra voru sannarlega í brýnni þörf, en nú er að koma á daginn að önnur voru það ekki. Þá stendur upp á stjórn­völd að skýra hvers vegna skilyrði voru sett gagnvart sumum stuðnings­úræðum, en öðrum ekki og hvers vegna háar girðingar eru reistar gagnvart einstaklingum í neyð, en ekki fyrir­tækjum,“ segir í ályktuninni.

Í henni er bent á að Alþýðu­sambandið hafi farið fram á það, þegar „ríkis­hirslurnar voru opnaðar til að veita fyrir­tækjum ríkis­stuðning af óþekktri stærð“ í upphafi kórónu­veiru­faraldursins fyrir tæpum tveimur árum síðan, að reist yrðu skilyrði fyrir slíkum stuðningi.

„Meðal annars lagði ASÍ áherslu á að fyrir­tækjum yrði gert skylt að nýta eigin bjargir áður en til stuðnings kæmi, að fyrirtæki undir­gengjust skilyrði um að greiða ekki út arð næstu tvö árin eftir fyrir­greiðslu eða nýta aðrar leiðir til að taka fé úr fyrir­tækjunum og að fyrirtæki eða eigendur þeirra væru ekki skráð í skatta­skjól. Að auki krafðist ASÍ þess að laun æðstu stjórn­enda fyrir­tækja sem fengju aðstoð væru ekki óhófleg saman­borið við laun almenns starfs­fólks. Sem sagt, aðstoðin yrði neyðar­aðstoð en ekki til þess að fyrirtækja­eigendur gætu makað krókinn,“ segir í ályktun miðstjórnarinnar.

Miðstjórn ASÍ bendir á að einungis hafi verið reist skilyrði fyrir stuðningi á grund­velli laga um hluta­bótaliðina svokölluðu, en að aðrir styrkir og stuðningur til fyrir­tækja hafi að mestu eða öllu leyti verið án skilyrða. „Þetta veldur því að nú eru dæmi um fyrirtæki sem eru beinlínis að greiða út arð fyrir skattfé,“ segir í ályktun miðstjórnarinnar.

Þar segir enn fremur að ströng skilyrði séu sett við „allri aðstoð sem einstaklingar njóta þegar í harðbakkann slær“ og að það eigi jafnt við um atvinnu­leysis­bætur, fjárhags­aðstoð sveitar­félaganna, almanna­tryggingar og önnur velferðar­úrræði.

„En þegar kemur að fyrir­tækjum er nálgunin önnur. Þótt enn sjái ekki fyrir endann á kreppunni, berast þegar fréttir af launa­hækkunum æðstu stjórn­enda, bónus­kerfum og gríðarlegri arðsemi fjármála­fyrirtækja og ýmissa annarra fyrir­tækja,“ segir í ályktun miðstjórnarinnar, sem telur sem áður segir bæði eðlilegt og réttmætt að stjórn­völd láti ráðast í rannsókn á meðferð opinberra fjármuna í tengslum við stuðnings­úrræði sem komið var á vegna faraldursins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár