Kínverski seðlabankinn bregst við tollastríði með fjárinnspýtingu

Stjórn­völd í Kína eru þegar byrjuð að undirbúa sig undir breytta mynd alþjóða­viðskipta vegna tolla­stríðs Kína og Banda­ríkjanna.

Seðla­bankinn í Kína hefur ákveðið að auka enn frekar við fjár­innspýtingu á innan­lands­markaði, til að bregðast við tolla­stríðinu við Banda­ríkin. Meðal þess sem gripið hefur verið til, er að liðka fyrir lánum banka og koma meira fjármagni í umferð, einkum til að styðja við vöxt og viðgang fyrir­tækja, en þegar eru komin fram merki um að viðskipta­stríðið við Banda­ríkin - sem Donald Trump hefur nú gert að einu að grund­vallarmálum sínum í efnahags­málum - muni hafa mikil áhrif í Kína.

Bob Baur, aðal­hagfræðingur PGI (Principal Global Investing), lét hafa eftir sér í viðtali við Bloomberg um helgina, að Kínverjar væru nú að reyna að halda vöxtum frekar í lægri kantinum, miðað við alþjóðlegt samhengi, og beita fjár­innspýtingu inn á markaðinn, til að örva hagkerfið heima fyrir. Hann sagði að þetta væri samt erfið staða fyrir Kína, þar sem miklar skuldir heima fyrir, bæði hjá heimilum og fyrir­tækjum, væru áhyggju­efni og of mikil örvun fyrir hagkerfið gæti skapað vandamál.

Óhætt er að segja að mikill uppgangur hafi verið í kínverska hagkerfinu á undan­förnum tveimur áratugum. Hagvöxtur hefur verið á bilinu 6 til 10 prósent á ári, í tvo áratugi. Í fyrra var hagvöxturinn 6,9 prósent.

Ríkis­stjórn Trumps hefur nú þegar komið á tollum sem beinast að innflutningi frá Kína, upp á 250 milljarða Bandaríkja­dala. Segja má að viðskipta­stríðið sem Trump hóf sé nú komið á næsta stig, þar sem tollarnir - meðal annars 10 til 25 prósent tollar á málm­innflutning - eru farnir að hafa mikil áhrif á gang efnahags­mála í heiminum.

Efnahags­stríð Banda­ríkjanna og Kínverja er líka sífellt að magnast upp á hinu pólitíska sviði. Mike Pence, vara­forseti Banda­ríkjanna, segir Kínverja vera að reyna að losa sig við Trump úr embætti forseta, meðal annars með skipulögðum tölvu­árásum í aðdrag­anda kosninga í nóvember (mid term election). Á allsherjar­þingi Sameinuðu þjóðanna sagði Trump sjálfur að Kínverjar væru að beita sér gegn Banda­ríkjunum, og það yrði ekki liðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár