Vill stokka upp eftirlitsstofnanirnar í landinu

Framkvæmda­stjóri SA segir að á síðustu árum hafi virkt eftirlit almennings með þjónustu, gæðum og verðlagi tekið miklum breytingum með þátttöku fólks á samfélags­miðlum. Hún sé mun fljót­virkari en „tilviljana­kenndar heim­sóknir opinbers eftirlits­fólks“.

Halldór Benjamín
Halldór Benjamín Mynd: Bára Huld Beck

Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífsins (SA) segir að nú blasi við tækifæri til að stokka upp eftirlits­stofnanirnar í landinu með „hagræðingu að leiðar­ljósi án þess að slaka á kröfum eða fórna hagsmunum almennings“. Þetta skrifar hann í aðsendri grein í Morgun­blaðinu í dag.

Hann telur að það megi ekki vera þannig að skipting verkefna milli ráðuneyta ráði því að reka þurfi allar eftirlits­stofnanir á Íslandi. „Þær verða að geta sinnt verkefnum sem tengjast mörgum ráðuneytum og fleiru en einum lagabálki en geta þá kallað á sérfræði­þjónustu þar sem hennar er þörf.“

Skrif hans hefjast á því að hann fer yfir hvernig eftirliti er háttað. „Fjölmargar stofnanir ríkis og sveitar­félaga hafa eftirlit með þjónustu og fram­leiðslu fyrir­tækjanna í landinu. Almennt fer eftir­litið þannig fram að starfs­maður stofnunar kemur í heimsókn og kannar hvort aðstæður í fyrir­tækinu séu í samræmi við lög og reglur. Skoðuð eru skjöl og önnur gögn, rætt við fólk og lagt mat á hvort gera þurfi athuga­semdir við starfsemina stórar eða smáar. Veittur er tiltekinn frestur til úrbóta og síðan taka við þyngri aðgerðir, álagning sekta eða jafnvel stöðvun starfsemi að hluta eða í heild.“

Halldór Benjamín segir að fyrir­tækin búi við að eftirlits­menn margra stofnana komi í heimsókn þar sem hver taki til skoðunar þá þætti sem honum ber en láti aðra afskipta­lausa. „Vinnu­eftirlit, níu heilbrigðis­eftirlit hvert á sínu svæði jafnvel með mismun­andi kröfur, Umhverfis­stofnun, Matvæla­stofnun og Fiskistofa eru dæmi um opinbera aðila sem senda fólk út af örkinni. Eftirlit með að vörur á markaði uppfylli settar kröfur hafa m.a. Neytenda­stofa, Umhverfis­stofnun, Vinnu­eftirlit, heilbrigðis­eftirlitin, Matvæla­stofnun og Fjarskipta­stofa og heimsækja í þessu skyni verslanir og skoða upplýsingar á merki­miðum og jafnvel verð­merkingar.“

Bendir hann á að Bifreiða­eftirlit ríkisins hafi verið lagt niður og annast skoðunar­stofur á almennum markaði þá þjónustu „án teljandi vandkvæða“.

„En vinnu­vélar og alls kyns önnur tæki sem lúta svipuðum lögmálum og bílar eru undir eftirliti Vinnu­eftirlits og vandséð hvers vegna ekki er unnt að fela skoðunar­stofum þetta eftirlit. Allar lyftur landsins fá árlega heimsókn frá Vinnu­eftirlitinu og er það til viðbótar eftirliti fram­leiðenda og mun Ísland eitt hafa þennan háttinn á þegar horft er til nágranna­landanna.

Eftirlit með póst- og fjarskipta­þjónustu er nú komið til Byggða­stofnunar og Fjarskipta­stofu en eftirlit með öryggi vöru hefur verið flutt til Húsnæðis- og mannvirkja­stofnunar. Ekki má gleyma Samkeppnis­eftirlitinu sem virðist nú hafa tekið upp hjá sér að hafa skoðun á og vilja takmarka umfjöllun hagsmuna­samtaka um efnahagsmál,“ skrifar hann.

Þátttaka fólks á samfélagsmiðlum fljótvirkari en „tilviljanakenndar heimsóknir opinbers eftirlitsfólks“

Halldór Benjamín lýkur grein sinni á að segja að hafa megi í huga að á síðustu árum hafi virkt eftirlit almennings með þjónustu, gæðum og verðlagi tekið miklum breytingum með þátttöku fólks á samfélags­miðlum. „Þar er þjónustan vegin og metin og fyrir­tækin bregðast í flestum tilvikum hratt og vel við. Þetta er mun fljót­virkara en stopular og tilviljana­kenndar heim­sóknir opinbers eftirlits­fólks.

Nútímalegar aðferðir eins og rafrænt eftirlit með gæða­kerfum, eftirlit með tilviljana­kenndu úrtaki, tölfræði­greiningar og skoðanir með tilliti til metinnar áhættu geta skilað hagræðingu og betri þjónustu en á sama tíma uppfyllt kröfur um nauðsyn opinbers eftirlits með tiltekinni starfsemi. Í upphafi kjör­tímabils er þetta kjörið verkefni nýrrar ríkis­stjórnar,“ skrifar hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár