Persakóngur gegn hinum 300 Spartverjum – eða hvað?

Þegar Xerxes kon­ungur í ríki Persa í Íran hugð­ist leggja undir sig Grikk­land bjugg­ust Grikkir til varnar í Lauga­skarði.

Leonídas í Laugaskörðum. Málverk eftir hinn franska David,
Leonídas í Lauga­skörðum. Málverk eftir hinn franska David, sem vann lengi að mál­verk­inu en kláraði það 1814 þegar Napóleon keis­ari Frakka virt­ist standa í sömu sporum og Leonídas, það er að segja ver­ast gegn ofurefli liðs.

Ísíðustu grein um sögu Írans var sagt frá upp­hafi her­ferðar Xerxesar Per­sa­kon­ungs til að leggja undir sig Grikk­land árið 480 FT. Ætlun hans var að hefna ófar­anna þegar her Daríusar, föður hans, tap­aði illa fyrir Grikkjum við Maraþon ára­tug fyrr.

Persa­veldi var þá öfl­ug­asta og stærsta ríki sem risið hafði í ver­öld­inni. Það gekk ein­fald­lega ekki að fámenn og sund­ur­þykk smá­ríki á jaðri heims­veld­is­ins neit­uðu ekki bara að fall­ast á yfir­ráð hins mik­il­feng­lega Per­sa­kon­ungs, heldur gerð­ust sek um þá ósvífni að sigra heims­veldið í orr­ustu.

Því hafði Xerxes nú safnað gríð­ar­stórum her og flota. Í fornum heim­ildum segir að í hernum hafi verið um milljón manns en það er áreið­an­lega ýkt. En töldu her og floti þó eitt­hvað rúm­lega 200.000 manns og jafn­vel á vorum dögum þætti það dálag­legur inn­rás­ar­her.

Xerxes á leiðinni!

Grikkir vissu vel að Xerxes var á leið­inni. Hann réði þegar yfir Þrakíu …

Kjósa
34
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár