Íslamska ríkið lýsir yfir ábyrgð á voðaverkunum í Berlín

Í yfir­lýsingu frá hryðjuverka­samtökunum segja þau að liðsmaður samtak­anna hafi ekið bifreið inn í mann­fjöldann á jóla­markaðnum. Tólf létust í árásinni.

Hryðju­verka­sam­tök­in Ríki íslams hafa lýst yfir ábyrgð á árás­inni á jóla­markaðinn í miðborg Berlín­ar í gær, þar sem tólf fór­ust og 48 slösuðust, þegar vöru­flutninga­bifreið var ekið í gegnum mannmergð á jóla­markaði í miðborginni. Frá þessi greindi breska ríkis­útvarpið BBC í dag.

Sam­tök­in, lýstu því yfir í gegn­um frétta­veitu sína Amaq, að vígamaður sam­tak­anna hefði ekið flutn­inga­bílnum, sem stolið var af pólsku flutninga­fyrirtæki fyrr um daginn, en starfs­maður pólska fyrir­tækisins, sem ók bifreiðinni áður en henni var rænt, var einn drepinn.

Ekki kom fram í yf­ir­lýs­ing­unni hver árás­armaður­inn væri, en lög­reglu­yf­ir­völd í Þýska­landi létu síðdeg­is í dag laus­an mann sem þau höfðu í haldi vegna árás­ar­inn­ar. Ástæðan var sú að sannanir skorti til að geta haldið honum lengur. Hann hefur alfarið hafnað því að tengjast verknaðinum.

Minningar­stund fór fram í Þýska­landi í dag, vegna voða­verkanna, og tóku allir helstu stjórn­málamenn og leiðtogar Þýska­lands þátt í henni, þar á meðal kanslarinn Angela Merkel. Hún hefur sagt að allt verði gert til upplýsa og rannsaka atburðinn, og draga þá til ábyrgðar sem stóðu fyrir fjölda­morðinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár