Íhaldsstjórn í kortunum?

Sigurður Ingi Jóhannsson er í lykil­stöðu og segist vilja hægri­flokk í ríkis­stjórn. Inga Sæland vill að Sigmundur Davíð eða Bjarni Benediktsson fái stjórnar­myndunar­umboð.

Maðurinn með lykilinn
Maðurinn með lyk­il­inn Svo virð­ist sem lyk­ill­inn að nýrri rík­is­stjórn Íslands sé í hönd­unum á Sigurði Inga Jóhanns­syni. Mynd: Pressphotos

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknar­flokksins, er í lykil­stöðu í þeim stjórnar­myndunar­þreifingum sem nú eru farnar af stað. Fjöl­flokka félags­hyggju­stjórn verður seint mynduð án Framsóknar­flokksins, en um leið er ólíklegt að Sjálfstæðis­flokkurinn geti tryggt sér áfram­haldandi stjórnar­setu nema í samstarfi við Framsóknar­flokkinn. 

Hlýtt er á milli nýrra þingmanna Miðflokksins og Flokks fólksins eins og birtist í samfloti Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar og Ingu Sæland á Bessa­staði í dag. Sigmundur Davíð staðfesti svo áðan í viðtali við fjölmiðla, eftir óvenju­langan fund sinn með forseta, að hann hefði verið í sambandi við Bjarna Benediktsson um hugsanlegar stjórnar­myndunar­viðræður. Samkvæmt heimildum Stundarinnar er þá litið sérstak­lega til samstarfs við Sigurð Inga Jóhannsson og Framsóknar­flokkinn. Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, sagði á fréttamanna­fundi rétt í þessu að henni þætti eðlilegast ef Bjarni Benediktsson eða Sigmundur Davíð fengi stjórnar­myndunar­umboðið frá forseta.

Katrín Jakobs­dóttir, formaður Vinstri grænna, fór af fundi forseta í dag með þau skilaboð að réttast væri að flokkarnir sem voru saman í stjórnar­andstöðu undan­farna átta mánuði reyndu fyrir sér um myndun ríkis­stjórnar, Vinstri græn, Samfylkingin, Framsóknar­flokkurinn og Píratar. Þá yrði jafnframt hugað að því að skapa breiðari samstöðu um ýmis mál og mála­flokka með fleiri flokkum á þinginu. 

Vilja hægri flokk í stjórnina

Sigurður Ingi hefur virst opinn fyrir þessu undan­farna daga, meðal annars á óformlegum fundi „stjórnar­andstöðu­flokkanna“ í þing­húsinu í morgun. Þess vegna kom mörgum á óvart þegar Sigurður Ingi sagði, í viðtali við fjölmiðla eftir fund sinn með forseta, að 32 manna þing­meirihluti yrði tæpur og álitlegra væri að mynda stjórn með „breiðari skírskotun frá hægri til vinstri og yfir miðju“.

Stjórn til vinstri með Framsóknar­flokknum og Pírötum hefði einungis 32 þingmenn, eða eins manns meirihluta. „Hann er auðvitað mjög tæpur og við höfum séð hvernig slík stjórn hefur hoppað fyrir björg á mjög stuttum tíma,“ sagði Sigurður Ingi á Bessa­stöðum.

Ólíklegt verður að teljast að með ummælunum hafi Sigurður Ingi verið að vísa til þess að flokkarnir fjórir myndu leita samstarfs við Viðreisn. Viðmælendur Stundarinnar úr þremur flokkum á Alþingi segja nærtækast að túlka orð Sigurðar sem ákall um samstarf við Sjálfstæðis­flokkinn. 

Þá er erfitt að meta hvort Sigurður Ingi líti á Flokk fólksins sem vinstri flokk í slíkri stjórn, en svo virðist sem óformlegt bandalag sé komið á milli Miðflokksins og Flokks fólksins.

„Ég er fyrst og fremst að horfa til þess að búa til ríkis­stjórn með breiða skírskotun í báðar áttir. Ég held að það sé það sem þurfi hér í landinu til að búa til pólitískan stöðug­leika. Það er sá kostur sem ég myndi helst vilja vinna að, en það eru vissulega aðrir kostir og við þurfum að skoða þá,“ sagði Sigurður Ingi.

Miðflokksmenn og framsóknarmenn tala saman

Sigurður Ingi og Sigmundur hafa ekki talað saman um stjórnar­myndun, samkvæmt yfir­lýsingum þeirra beggja. Hins vegar sagði Sigmundur Davíð, eftir fund sinn með forseta Íslands, að þingmenn í báðum flokkum hefðu átt samtöl undan­farna daga.

Í ljósi þess að flokkar af bæði hægri- og vinstri­væng íslenskra stjórn­mála renna hýru auga til Framsóknar­flokksins er staða Sigurðar Inga sterk. Og með ummælum sínum um breiða skírskotun frá vinstri til hægri minnti hann rækilega á það. 

Framhald stjórnar­myndunar­viðræðna ræðst þannig að miklu leyti af því hvort Sigurður telur flokknum sínum gagnast betur; samstarf félags­hyggju­flokka eða samstarf íhalds­samra flokka. Mun Sjálfstæðis­flokkurinn jafnvel eftirláta Sigurði Inga forsætis­ráðuneytið? Og vill Framsóknar­flokkurinn binda trúss sitt við Flokk fólksins og Miðflokkinn, þrátt fyrir stirð samskipti Fram­sóknarmanna við Sigmund Davíð?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár