Kylie Cosmetics nær tvöfalt verðmætara en Icelandair

Fyrirtæki tvítugu raun­veruleika­stjörnunnar Kylie Jenner er metið á tæplega 86 milljarða íslenskra króna, en það er nær tvöfalt meira en markaðs­virði Icelandair.

Kylie Jenner, eigandi Kylie Cosmetics.
Kylie Jenner, eig­andi Kylie Cosmetics. Mynd: EPA

Snyrtivöru­fyrirtæki Kylie Jenner er nær tvöfalt verð­mætara en Icelandair, en Jenner á 100% í fyrir­tækinu. Til viðbótar við samninga við önnur fyrirtæki og sjónvarps­tekjur er Jenner sjálf metin á nær 100 milljarða íslenskra króna.

Í umfjöllun tíma­ritsins Forbes um Jenner er farið yfir árangur snyrtivöru­fyrirtækis hennar, Kylie Cosmetics, sem hóf störf fyrir tveimur árum síðan með sölu á svokölluðu „varasetti“ (e. lip kit) sem samanstóð af varalit og vara­blýanti. Sölu­verðmæti fyrir­tækisins nemur nú meira en 630 milljónum Bandaríkja­dala, þar af 330 milljónum árið 2017, en það hefur síðan bætt við sölu á annars konar snyrti­vörum, líkt og augn­skugga og hyljara.

Samkvæmt reikningum Forbes er Kylie Cosmetics metið á tæplega 800 milljón Bandaríkja­dala, en það jafn­gildir um 85 milljarða íslenskra króna. Væri fyrir­tækið skráð í Kauphöll Íslands væri það þriðja verð­mætasta fyrir­tækið þar, á eftir Marel og Arion banka. Til saman­burðar er markaðs­virði Icelandair í 47 milljörðum íslenskra króna, og er því Kylie Cosmetics tæplega tvöfalt verð­mætara.

Einungis fimm starfsmenn

Rekstur snyrtivöru­fyrir­tækisins reiðir sig mjög mikið á útvistun vinnuafls, en einungis fimm starfs­menn vinna þar í fullri vinnu auk tólf annarra í hluta­vinnu. Vöru­vinnslu og pökkun er útvistað til fyrir­tækisins Seed Beauty og veffyrirtækið Shopify sér um sölu varanna. Fjármál fyrir­tækisins og markaðs­setning er svo í höndum móður Kylie, Kris Jenner. Samkvæmt Forbes gerir kostnaðar­uppbyggingin fyrir­tækinu kleift að hagnast gífurlega, en hagnaðurinn fer allur beint í vasa Jenner þar sem hún á 100% í fyrir­tækinu.

Til viðbótar við arðinn sem hún hefur tekið úr fyrirtæki sínu, tekjur úr sjónvarps­þáttum auk tekna sem hún fær fyrir að kynna aðrar vörur líkt og Puma skó og PacSun fatnað er Jenner metin á um 900 milljón Bandaríkja­dala, eða um 96 milljarða íslenskra króna. Með því er hún orðin yngsti einstaklingur á lista Forbes yfir ríkustu konur heimsins á eigin verð­leikum, en Jenner verður 21 árs í haust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár