Mjólkurmolar í kaffið

Rannsóknar­hópur hefur hannað mjólkur­mola sem sparar rusl og inni­heldur fljótandi mjólk inni í sykur­kristalla­hylki.

Kaffi er uppáhalds­drykkur margra, enda fjöldi fólks sem telur daginn ekki hafinn fyrr en búið er að dreypa á fyrsta kaffi­bollanum. Notkun á mjólk og stundum sykri er vel þekkt og mætti jafnvel fullyrða að a.m.k. helmingur þeirra sem drekka kaffi velja að drekka það með slettu af mjólk.

Þessi mjólkur­sletta getur valdið nokkrum vandræðum þegar kaffi er drukkið við ákveðnar aðstæður, t.d. í flugvélum eða á ráðstefnum. Við slíkar aðstæður þykir oft ekki fýsilegt að vera með stóra mjólkur­fernu. En til að gera mjólkur­drykkju­fólki til hæfis eru oft til staðar pínu­litlar umbúðir sem innihalda akkúrat það sem samsvarar einni slettu af mjólk.

Það gefur auga leið að litlu fernurnar skilja eftir sig gommu af rusli, aðallega plasti, sem gott er að forðast. Til að leysa þetta vandamál hefur rannsóknar­hópur við Martin-Luther-Universität Halle-Wittenberg hannað nokkurs konar mjólkur­mola, mola sem innihalda fljótandi mjólk inní sykur­kristalla­hylki.

Mjólkur­molarnir verða til þegar mjólkinni og súkrósa eða gervi­sykrinum erythritol er blandað saman og síðan kælt á ákveðinn hátt í sérstökum formum. Við kælinguna mynda sykur­sameindirnar kristalla sem raðast upp utan um mjólkina. Inní hylkinu er því fljótandi mjólk sem blandast við kaffið þegar sykurinn hefur bráðnað saman við það.

Samkvæmt rann­sóknum hópsins geta molarnir enst í allt að 3 vikur, svo það er tilvalið fyrir flugfélög eða hótel að nýta þennan kost til að minnka sorpið. Því miður er staðan ennþá þannig að þeir hafa engan áhuga á því að drekka sykrað kaffi geta ekki nýtt þessi hylki. En við treystum á að lausn við því verði fundin fyrr en varir. Á sama tíma er einnig unnið að því að skoða hvort hylkin uppfylli allar þær kröfur sem við gerum til matvæla, en fyrr er ekki hægt að selja mjólkur­molana sem matvöru.

Fréttin birtist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár