Ronaldo sekur um stórfelld skattsvik og vill semja

Cristiano Ronaldo, fyrirliði Portúgal og einn besti fótbolt­leik­maður heimsins, hefur viðurkennt stórfelld skattsvik og gæti átt yfir höfði sér fangelsis­vist.

Cristiano Ronaldo, fyrirliði Portúgal og leikmaður Real Madrid, hefur samþykkt að greiða 18,8 milljónir evra, eða sem nemur um 2,5 milljarði króna, í sekt til yfirvalda á Spáni vegna ákæru á hendur honum fyrir skattsvik, og viðurkennt sekt í málinu.

Samkvæmt umfjöllun breska ríkis­útvarpsins BBC, sem birtist í dag, er Ronaldo sagður hafa boðist til að greiða upphæðina sem hann var sakaður um að hafa skotið undan í fyrra, en yfirvöld neituðu og hafa haldið málinu gegn honum til streitu.

Hann á nú að hafa gert munnlegt samkomulag um að hann greiði sektina og viðurkenni sekt. Ólíklegt þykir að hann þurfi að sitja í fangelsi vegna lögbrot­anna, en það er þó ekki útilokað, þar sem upphæðin í máli hans er mun hærri en í öðrum málum þar sem sakfellt hefur verið fyrir svipuð mál.

Formlegt samkomulag um mála­lyktir liggur þó ekki fyrir, samkvæmt umfjöllun BBC.

Málið snýst um skatta­undanskot vegna tekna sem Ronaldo hafði af ímynd sinni, líkt og var raunin með mál yfirvalda gegn Lionel Messi, en hann greiddi þá 250 þúsund evrur í sekt og fékk tveggja ára fangelsi í refsingu.

Hann neitaði sök, ólíkt því sem Ronaldo hefur nú gert.

Á Spáni þurfa þeir sem hljóta tveggja ára fangelsi eða minna, fyrir auðgunar­brot eða skattsvik, ekki að sitja inni, haldi þeir skilorð.

Óhætt er að segja að Ronaldo sé ekki að láta þetta bitna á afrekum hans á vellinum, en hann skoraði þrennu fyrir Portúgal gegn Spán­verjum þar sem leikar enduðu 3-3.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár