Obama: „Hvernig gat þetta gerst?“

„Hvert sem ég fer þessa dagana, bæði hér heima og erlendis, er ég spurður að sömu spurningunni: Hvað er að gerast í stjórn­málunum í Banda­ríkjunum? Hvernig hefur þjóð sem hefur hagnast – hugsanlega meira en nokkur önnur þjóð – á framlagi innflytjenda, viðskiptum um útlönd og nýsköpun á sviði tækni, allt í einu þróað með sér and-innflytjenda­stefnu og einangrunar­hyggju? Hvernig gat þetta gerst?“

Svona hefst ítarleg grein Baracks Obama, Bandaríkja­forseta, sem hann ritaði í síðasta hefti The Economist. Hún ber heitið Vegurinn framundan (The Way Ahead), og fjallar hann meðal annars um stöðuna í stjórn­málunum, nú þegar um þrjár vikur eru til forseta­kosninga í landinu. EN þar. Í greininni segir hann, að það sé réttmæt að spyrja þessara spurninga, þó of lítið sé rætt um þær miklu framfarir sem hafa orðið í hagkerfi Banda­ríkjanna frá því fjármála­kreppan náði hámarki, í nóvember 2008, þegar Obama var kjörinn forseti.

Uppgangur „popúlisma“

Obama segir að þetta sé ekkert nýtt, en þessi mikla hræðsla við breytingar, ofan á andúð í garð innflytjenda, sé vel sjáanleg um allan heim. Banda­ríkin séu ekki eina landið sem upplifi þetta, og nefnir Obama sérstak­lega Brexit-atkvæða­greiðsluna í Bretlandi sem dæmi um þróun á vettvangi stjórn­málanna sem sýni glögglega að „popúlismi“ sé vaxandi í þróuðum ríkjum.

Obama segir að tímamót séu framundan í þróun efnahags­mála, þar sem of langur tími hafi litið þar sem fram­leiðni hafi ekki vaxið samhliða hagvextir og fólks­fjölgun, og á sama tíma hafi misskipting auðs aukist. Þá segir hann að of margt hæfileika­ríkt fólk, ekki síst á sviði raun­vísinda­greina, vinni við að „færa til fjármagna í fjármála­geiranum“ í stað þess að virkja hæfileika sína í nýsköpun í raun­hagkerfinu.

Á réttri leið

Obama eyðir töluverðu púðri í að rökstyðja að efnahagur Banda­ríkjanna sé nú á réttri leið, eftir mikið og langt erfiðleika­tímabil. Atvinnu­leysi mælist nú um fimm prósent en það fór hæst yfir 10 prósent eftir fjármála­kreppuna. Þá hafa lítil og meðalstór fyrirtæki í landinu einnig verið að styrkja rekstur sinn og nýráðningar eru nú á stað sem Obama telur vera heilbrigðis­merki.

Hann nefnir einnig að allir hópar hafi styrkt stöðu sína, þegar meðal­tölin eru skoðuð, einkum og sér í lagi fátækir og milli­stéttar­fólk. Hagvöxtur í Banda­ríkjunum hefur mælst 1,5 til 2,5 prósent á undan­förnu ári, og segir Obama það í takt við væntingar.

Breytingar

Obama segir að nýsköpun, ekki síst á sviði orkumála, sé það sem mestu muni skipta fyrir gang efnahags­mála á næstu árum. Þar skipti stefnu­mörkun stjórn­valda miklu máli, því hún opni tækifæri fyrir háskóla og einka­fyrirtæki, til að halda kyndlinum á lofti í þessum efnum.

Hann biður fólk um að sýna þolinmæði, en um leið horfa eftir smáatriðunum, og sjá hvort hlutirnir séu ekki að færast áfram frekar en aftur á bak. „Bandrísk stjórnmál geta verið uppspretta gremju og vantrúar. Trúið mér, þegar ég segi það. En upplýsingar sýn að undan­farnir tveir áratugir hafa verið tími fram­þróunar, þrátt fyrir allt [...] Þetta ætti að vekja von í brjósti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár