Mega þingmenn og ráðherrar ljúga?

Pia Kjærsgaard, fyrrverandi formaður danska Þjóðarflokksins, glöð í bragði.
Pia Kjærs­gaard, fyrr­ver­andi for­maður danska Þjóð­ar­flokks­ins, glöð í bragði. Mynd: EPA

Stundum er sagt að ekkert sé svo einfalt að það geti ekki orðið flókið. Þessi full­yrðing á kannski vel við fyrirsögn pistilsins. Svarið virðist augljóst: Þingmenn mega ekki og eiga ekki að ljúga. Frekar en aðrir myndi margur segja. Það kann þess vegna að hljóma undarlega að danska þingið, Folketinget, hafi rætt þessa, að því er virðist, einföldu spurningu og ekki getað komið sér saman um svarið. Í þinginu eru allir sammála um að þingmenn og ráðherrar megi ekki ljúga, hvorki að þinginu né almenningi. En málið er kannski ekki alveg svona einfalt, því komust þing­mennirnir að þegar þeir ætluðu að svara spurningunni. En af hverju eru danskir þingmenn að ræða mál sem þetta? Jú, það á sér skýringu.

Kristjaníuferðin

Í febrúar árið 2012 ákvað dómsmála­nefnd danska þingsins, ásamt nokkrum yfir­mönnum úr lögreglunni að heimsækja Kristjaníu, í tilkynningu danska þingsins stóð að ætlunin væri að kynna sér mannlífið og atvinnu­starfsemina. Meðal þeirra þingmanna sem ætluðu í þessa ferð var Pia Kjærsgaard þáverandi formaður Danska þjóðar­flokksins, hún hefur iðulega lýst miklum efasemdum um tilvist Kristjaníu. Áður en af heim­sókninni varð var ferðinni frestað og Morten Bødskov dómsmála­ráðherra tilkynnti dómsmála­nefnd þingsins að lögreglu­stjórinn í Kaupmanna­höfn kæmist ekki þennan tiltekna dag. Þegar Leyni­þjónustan, sem sá um skipulagningu ferðarinnar, nefndi daga sem hentuðu til heim­sóknarinnar, voru það alltaf dagar þar sem Pia Kjærsgaard var að heiman og gat ekki farið.

Til að gera langa sögu stutta var sagan með lögreglu­stjórann fyrir­sláttur. Hin raun­verulega ástæða kom síðar í ljós og var sú að Leyni­þjónustan taldi sig ekki geta tryggt öryggi Piu Kjærsgaard. Kristjaníu­ferðin, þar sem Pia Kjærsgaard var meðal þátt­takenda var hinsvegar farin í júní 2012 og gekk snurðu­laust.

Lygavefur ráðherrans

Piu Kjærsgaard hafði grunað að Leyni­þjónustan hefði snuðrað í dagbók hennar í gegnum tölvu­kerfi þingsins, en slíkt er harðbannað. Pia Kjærsgaard skráði þessvegna ekki hina fyrir­huguðu Kristjaníu­ferð í dagbókina og Leyni­þjónustan vissi þess vegna ekki að hún væri meðal þátt­takenda fyrr lagt var af stað. Þetta taldi Pia Kjærsgaard sönnun þess að kíkt hefði verið í dagbókina.

Sautján mánuðum eftir Kristjaníu­ferðina komu trúnaðar­menn innan Leyni­þjónustunnar fram með fjölmargar alvarlegar ásakanir á hendur yfirmanni sínum, Jacob Scharf. Þar á meðal að hann hefði fyrir­skipað að kíkt yrði í dagbók Piu Kjærsgaard. Jacob Scharf hrökklaðist í kjölfarið úr Leyni­þjónustunni. Upplýsingar trúnaðar­mannanna staðfestu grun Piu Kjærsgaard og jafnframt að Morten Bødskov dómsmála­ráðherra hefði logið að dómsmála­nefnd þingsins. Ráðherrann viðurkenndi þetta á fundi með nefndinni en hann hefði neyðst til að segja ósatt. ”Nödlögn” sagði ráðherrann, neyðar­lygi, til að afhjúpa ekki ólöglegt athæfi Leyni­þjónustunnar (að kíkja í dagbókina). Söguna um lögreglu­stjórann hafði hann sett saman í samráði við ráðuneytis­stjórann (sem síðar var fluttur í annað ráðuneyti) og annan hátt settan embættis­mann í dómsmála­ráðuneytinu. Nokkrum dögum eftir að Morten Bødskov sagði frá neyðar­lyginni tilkynnti hann afsögn sína og Karen Hækkerup tók við dómsmála­ráðuneytinu.

Getur verið nauðsynlegt að ljúga eða sveigja sannleikann

Karen Hækkerup skipaði strax sérstaka nefnd, undir forsæti hæstaréttar­dómara til að kanna hlut embættis­mannanna tveggja sem höfðu aðstoðað Morten Bødskov við lyga­söguskrifin. Nefndin komst að þeirri niður­stöðu að lygasagan hefði verið neyðar­lygi (forklarelig og undskyldelig nødløgn) og væri þess vegna ekki tilefni áminningar eða brott­rekstrar. Lagði semsagt blessun sína yfir athæfið.

Niður­staða nefndarinnar, sem skilaði af sér í maí 2014, vakti ekki ánægju þingmanna og margir þeirra lýstu mikilli óánægju með að rann­sóknar­nefndin gæfi „grænt ljós“ á að ráðherrar mættu með aðstoð embættis­manna segja þingnefnd og þingheimi öllum ósatt. Þingmenn voru hinsvegar sammála um að þær aðstæður gætu skapast að ráðherra neyddist til að „sveigja sann­leikann“. Þingmenn voru líka sammála um að í slíkum tilvikum yrði þingið með einhverjum hætti að fjalla um málið. Spurningin var bara hvernig ætti að búa um hnútana.

Flókið mál

Það sýnir kannski best hvað málið er snúið og viðkvæmt að þótt tvö ár séu liðin síðan rann­sóknar­nefndin skilaði skýrslu sinni og þingmenn urðu sammála um að bregðast við hefur engin niður­staða fengist. Þing­flokkarnir hafa rætt fram og til baka og sérstökum hópi, skipuðum fulltrúum allra flokka, var falið að gera tillögur að reglum. Þingmaður sem dagblaðið Jótlands­pósturinn ræddi við sagðist fyrirfram hafa talið að einfalt yrði að setja saman einhverjar vinnu­reglur varðandi neyðar­lygi en það væri nú öðru nær. „Það stríðir auðvitað gegn öllum skráðum, og óskráðum reglum að ljúga, en svo sitjum við og reynum að smíða regluverk, sem gengur að vissu leyti gegn þessum gildum. Hljómar kannski sem einfalt viðfangs­efni en annað hefur komið á daginn“ sagði þessi þingmaður.

Annar þingmaður sagði í viðtali við dagblaðið Berlingske að líklegast yrði farin sú leið að skipa sérstaka nefnd innan þingsins sem ráðherrar gætu leitað til þegar „sveigja verður sann­leikann.“ Allir í þinginu væru sammála um að það væri aðeins í algjörum undan­tekninga­tilvikum sem ráðherra þyrfti að beita slíkum aðferðum.

Hópurinn sem skipaður var til að útbúa reglurnar hefur ekki lokið störfum en þegar því verki lýkur verða tillögurnar lagðar fyrir þing­flokkana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár