Sean Penn leiddi yfirvöld að Guzman - Viðtal á vef Rolling Stone

Banda­ríski leik­ar­inn Sean Penn hitti mexíkóska eit­ur­lyfja­bar­ón­inn Joaquin Guzman, eða El Chapo, í októ­ber síð­ast­liðnum. Hann tók við hann við­tal sem birt­ist á vef­síðu Rolling Stone í nótt, en hann átti sjö klukku­stunda fund með Guzman, inn í frum­skógum Mexíkó, og héldu þeir áfram sam­bandi eftir það, sem var meðal þess sem leiddi yfir­völd á sporið um hvar Guzman væri að finna. Eftir skot­bar­daga við lög­reglu var hann hand­tek­inn í fyrra­dag.

Hann flúði úr örygg­is­fang­elsi í gegnum 1,5 kíló­metra löng göng, 12. júlí síð­ast­lið­inn, en var hand­tek­inn í fyrra­dag, eftir að hafa verið á flótta í um hálft ár. Hann var eft­ir­lýstur í Mexíkó og Banda­ríkj­unum, vegna stór­fellds eit­ur­lyfja­smygsl, morða og skipu­lagðrar glæp­a­starf­semi. Hann er álit­inn hafa verið um ára­bil einn allra umsvifa­mesti fíkni­efna­smygl­ari heims­ins.

Þegar Penn og Guzman hitt­ust sagð­ist Guzman vera sá maður sem dreifði meiru af heróíni, amfetamíni, kóka­íni og maríjúana en nokkur annar í heim­inum. Þeir sátu saman dágóða stund, ræddu um kvik­myndir, ork­uðinað og ýmis­legt fleira, og sam­mælt­ust um að hitt­ast aftur átta dögum síðar. Það gerð­ist hins vegar ekki. 

Yfirvöld komust á sporið, og tókst að hand­sama hann eftir umfangs­miklar aðgerðir og skot­bar­daga, eins og áður sagði. Búist er við því að hann verði fram­seldur til Banda­ríkj­anna og þar bíði hans löng fang­els­is­vist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár