Vilja að Trump hætti við forsetaframboðið

Vaxandi þrýstingur er innan Repúblikana­flokksins á Donald J. Trump og hann beðinn um að hætta við forseta­framboð sitt.

Vaxandi þrýstingur er nú sagður innan Repúblikana­flokksins í Banda­ríkjunum um að Donald Trump, forseta­fram­bjóðandi flokksins, dragi framboð sitt til baka. Ástæðan er sú að hann er ekki talinn siðferði­lega hæfur til þess að vera forseta­efni þessa rótgróna flokks í Banda­ríkjunum. Sérstak­lega eru það umdeild ummæli hans um konur, frá árinu 2005, sem hafa leitt til mikillar umræðu innan Repúblikana­flokksins. 

Washington Post birti myndband frá árinu 2005 þar sem hann heyrist tala niður til kvenna með afar niðrandi hætti. Trump hefur sjálfur beðist afsökunar á ummælunum og kona hans, Melina Trump, hefur sagt þau óásættanleg. Hún segist þó standa með manni sínum og segir hann vera leiðtoga sem heimurinn þurfi á að halda.

Quartz birti í gær lista yfir 30 valdamenn innan Repúblikana­flokksins sem hafa nú snúist gegn Trump og dregið stuðnings­yfir­lýsingar sínar til baka. Þar á meðal er Christina Todd Whitman, fyrr­verandi ríkis­stjóri í New Jersey, en hún hefur til þessa vera mikil­vægur banda­maður hans.

Þá lýsti John McCain, fyrr­verandi forseta­fram­bjóðandi Repúblikana, því yfir í gær að hann gæti ekki kosið Trump. Hegðun hans væri óafsakanleg.

Vefurinn FiveThirtyEight.com telur nú 81,6 prósent líkur á því að Hillary Clinton, forseta­efni Demókrata, vinni kosningarnar 8. nóvember næst­komandi, en aðeins 18,4 prósent líkur eru taldar á sigri Trump. Fyrir mánuði síðan leit spáin allt öðruvísi út, voru þá 48 prósent líkur á sigri Trump. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár