Guðni sendir Pútín heillaóskir

Eftir úrslit helgarinnar í forseta­kosningunum í Rússlandi sendir forseti Íslands heilla­óskir til sigurvegara kosninganna, Vladímírs Pútíns, og minnir jafnframt á skyldu þjóðar­leiðtoga að vinna að öryggi og hagsæld íbúa.

Guðni Th. Jóhannesson og Vladímír Pútín.
Guðni Th. Jóhann­es­son og Vladímír Pútín. Mynd: Samsett mynd.

Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson sendi í dag heilla­óskir til forseta Rússlands, Vladímírs Pútíns, sem var kjörinn á ný í embætti um helgina.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá skrif­stofu forseta Íslands.

Í kveðju sinni minnir forseti á þá skyldu þjóðar­leiðtoga að vinna að öryggi og hagsæld íbúa. Brýnt sé að fulltrúar ríkja geti rætt saman af hreinskilni. „Miklu skiptir að þjóðar­leiðtogar leiti ætíð friðsamlegra lausna þar sem ófriður ríkir og styðji hvarvetna öryggi, hagsæld og einstaklings­frelsi,“ segir Guðni.

Loks segir forseti í bréfi sínu að þrátt fyrir miklar sviptingar á alþjóða­vettvangi hafi gagnkvæm samskipti Íslands og Rússlands verið báðum ríkjum hagfelld. Heilla­drjúg framtíð norðurslóða og íbúa þeirra byggist á sjálf­bærri þróun, umhverfis­vernd og góðri samvinnu þjóðanna sem þar búa.

Vladímír Pútín vann yfirburða­sigur í forseta­kosningunum í Rússlandi síðastliðinn sunnudag. Hann hlaut 76,7 prósent atkvæða en það er besta kosning sem hann hefur hlotið í forseta­kosningum hingað til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár