Hámarksálag á reikisímtöl verður lækkað um tæp fjögur prósent

Evrópu­sambandið hefur sett reglugerð sem lækkar þá upphæð sem fjarskipta­fyrirtæki mega rukka fyrir umfram­notkun reikisímtala. Til stendur að taka reglu­gerðina upp í EES-samningnum og þar með hérlendis.

Hámarks­álag sem fjarskipta­fyrirtæki mega leggja á umfram­notkun reikisímtala í farsíma mun lækka úr 0,0079 í 0,0076 evrur fyrir hverja mínútu í ár, eða um tæp fjögur prósent, samkvæmt reglugerð framkvæmda­stjórnar Evrópu­sambandsins sem er dagsett 14. desember 2020.

Fyrir­hugað er að taka reglu­gerðina upp í samningunum um Evrópska efnahags­svæðið (EES) sem Ísland er aðili að, og í kjölfarið verður hún leidd í landsrétt hérlendis.

Drög að reglu­gerðinni hafa verið birt í samráðs­gátt stjórn­valda og umsagnar­frestur rennur út um miðja næstu viku. Verði reglu­gerðin samþykkt mun hún samstundis öðlast gildi.

Reikisímtöl eru símtöl viðskipta­vina erlendis. Sérstök reikigjöld, sem áður höfðu verið afar kostnaðarsöm fyrir neytendur, voru afnumin í Evrópu í júní 2017 en með ákveðnum takmörkunum. Mikil notkun á þekktum efnis­veitum á borð við Spotify, Netflix og annarra slíkra sem nota mikið gagnamagn getur leitt til auka­kostnaðar. Og það er sá auka­kostnaður sem reglu­gerðin nær til.

Íslensku fjarskipta­fyrirtækin hafa haft umtals­verðar tekjur af reiki á undan­förnum árum, samhliða því sem ferða­mönnum hérlendis hefur fjölgað mikið. Umfram­notkun þeirra hérlendis, og umfram­notkun Íslendinga á ferðum þeirra erlendis, skilar tekjum til þeirra.

Þegar ferða­mönnum fækkaði úr tæpum tveimur milljónum árið 2019 í tæplega hálfa milljón í fyrra vegna COVID-19 drógust reikitekjur þeirra skarpt saman. Farsíma­tekjur Sýnar drógust til a mynda saman um 275 milljónir króna á fyrstu níu mánuðum síðasta árs og var sá samdráttur að mestu rakinn til þess að reikitekjur lækkuðu um 60 prósent.

Síminn, hitt fjarskipta­fyrirtækið sem er skráð á markað, fór ekki varhluta af þessari þróun heldur. Tekjur hans vegna farsíma­notkunar drógust saman um 198 milljónir króna á fyrstu níu mánuðum síðasta árs og var sá samdráttur að uppistöðu vegna þess að reiki­tekjur hafa dreg­ist saman sam­hliða því að ferða­tak­mark­anir hafa gert það að verkum að ferða­menn koma ekki lengur til lands­ins svo nokkru nemi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár