Píratar segja ríkisstjórnina hafa sett pólitíska hagsmuni ofar hag barna

„Hér hefur sam­trygg­ing stjórn­mál­anna verið sett ofar góðri og heið­ar­legri stjórn­sýslu,“ segir í frétta­til­kynn­ingu frá þing­flokki Pírata.

Halldóra Mogensen og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir eru þeir þingmenn Pírata sem hafa tjáð sig mest um barnaverndarmál og málefni Braga Guðbrandssonar.
Halldóra Mogensen og Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir eru þeir þing­menn Pírata sem hafa tjáð sig mest um barna­vernd­ar­mál og mál­efni Braga Guð­brands­sonar. Mynd: Pressphotos.biz

Þing­flokkur Pírata segir rík­is­stjórn­ina hafa sett póli­tíska hags­muni ofar hag barna með því að gefa vill­andi upp­lýs­ingar um við­fangs­efni óháðrar úttektar um barna­vernd­ar­mál og bjóða Braga Guð­brands­son fram til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna án þess að ávirð­ingar á hendur honum hefðu verið rann­sak­aðar með full­nægj­andi hætti. Þar hafi sam­trygg­ing stjórn­mál­anna verið sett ofar vand­aðri stjórn­sýslu.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu sem þing­flokk­ur­inn sendi frá sér í gær, dag­inn eftir að úttekt Kjartans Bjarna Björg­vins­sonar hér­aðs­dóm­ara og Krist­ínar Bene­dikts­dóttur dós­ents um með­ferð vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins á kvört­unum barna­vernd­ar­nefnda undan stjórn­sýslu Barna­vernd­ar­stofu og óform­legum afskiptum for­stjóra stofn­un­ar­innar af ein­stökum málum. 

„Fullyrt var í upp­hafi að um óháða úttekt væri að ræða sem tæki til máls­með­ferðar Barna­vernd­ar­stofu, barna­vernd­ar­nefnda og ráðu­neyt­is­ins í til­teknum barna­vernd­ar­málum. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins 2. maí síð­ast­lið­inn. Síðar var það hlut­verk þrengt án þess að greint væri frá opin­ber­lega og tekur því úttektin aðeins til stjórn­sýslu ráðu­neyt­is­ins,“ segir í frétta­til­kynn­ingu Pírata. Stundin fjall­aði um þetta atriði í gær og hefur sent for­sæt­is­ráðu­neyt­inu fyr­ir­spurn um málið.

„Þing­flokkur Pírata harmar hversu lít­inn vilja virð­ist að finna hjá fram­kvæmda­vald­inu til nafla­skoð­unar sem leitt gæti til raun­veru­legra umbóta í mála­flokknum en leggja þess í stað allan kraft í að sópa mál­inu undir teppi. Þar eru póli­tískir hags­munir settir ofar hag barna. Hér hefur sam­trygg­ing stjórn­mál­anna verið sett ofar góðri og heið­ar­legri stjórn­sýslu,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Telur þing­flokk­ur­inn að spurn­ingum um rétt­mæti fram­boðs Braga Guð­brands­sonar til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna sé enn ósvarað, enda hafi ráðu­neyt­inu láðst að sinna rann­sókn­ar­skyldu sinni þegar kvartað var undan ítrek­uðum óform­legum afskiptum Braga af ein­stökum barna­vernd­ar­málum.

Bent er á að úttekt­ar­nefndin hafi ekki lagt heild­ar­mat á eða tekið efn­is­lega afstöðu til starfs­hátta Braga Guð­brands­sonar. Nið­ur­staðan sé sú að vel­ferð­ar­ráðu­neytið hafi ekki upp­lýst máls­at­vik nægi­lega vel til þess að geta tekið ákvörðun um lög­mæti emb­ætt­is­færslna Braga. Hafi ráðu­neytið hvorki virt rann­sókn­ar­regl­una né and­mæla­regl­una við með­ferð máls­ins.

Í úttekt­inni er vel­ferð­ar­ráðu­neytið gagn­rýnt harð­lega fyrir að hafa ekki kannað betur afskipti Braga af svoköll­uðu Hafn­ar­fjarð­ar­máli og óskað skýr­inga á þeim.

Samkvæmt einu sam­tíma­gögn­unum um afskiptin sem til eru beitti Bragi sér fyrir því að stúlkur yrðu látnar umgang­ast föður sinn þrátt fyrir grun­semdir barna­vernd­ar­nefndar og með­ferð­ar­að­ila um kyn­ferð­is­brot. Þetta gerði Bragi í kjöl­far þess að föð­ur­afi stúlkn­anna hafði leitað til hans. 

Skjöl sem birt eru í úttekt Kjartans Bjarna og Krist­ínar um Hafn­ar­fjarð­ar­málið eru þau sömu og umfjöllun Stund­ar­innar þann 27. apríl byggði á. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hug­sjóna­flokkur verður að borg­ara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síð­ustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trú­verð­ug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokk­ur­inn tal­aði áður skýrt á móti. Samhliða hefur rót­tækt fólk úr gras­rót­inni yfir­gefið Vinstri græn, kjós­enda­hóp­ur­inn breyst, hratt gengið á póli­tíska inn­eign Katrínar Jak­obs­dóttur og fylgi flokks­ins hrunið. Þetta er fórn­ar­kostn­aður þess að kom­ast að völdum með áður yfir­lýstum póli­tískum and­stæð­ingum sínum.

10 mín. lestur

ÚttektRíkisstjórn Katrínar

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár