Kallar eftir upplýsingum um fund namibísks ráðherra í dómsmálaráðuneytinu

Þingmaður Viðreisnar vill að dómsmála­ráðherra geri grein fyrir innihaldi fundar sem aðstoðar­maður hans átti með namibískri sendi­nefnd í byrjun júní og á hvaða forsendum aðstoðar­maðurinn telur sig geta neitað að tjá sig um fundinn.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar.
Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, þing­maður Við­reisnar. Mynd: Eyþór Árnason

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugs­dóttir, þingmaður Viðreisnar, hefur lagt fram skriflega fyrir­spurn til Jóns Gunnars­sonar dómsmála­ráðherra um fund Netumbo Nandi-Ndaitwah, aðstoðar­forsætis­ráðherra og utan­ríkis­ráðherra Namibíu, í dómsmála­ráðuneyti 7. júní síðastliðinn.

Þorbjörg Sigríður hefur kallað eftir upplýsingum um hvert tilefni fundarins var, hvaða mál voru rædd á honum og hvenær boðað var til fundarins. Þá vill hún vita hver skilaboð íslenskra stjórn­valda til Netumbo Nandi-Ndaitwah voru á þessum fundi og á hvaða forsendum Brynjar Níelsson, annar aðstoðar­manna dómsmála­ráðherra, hefur ekki viljað tjá sig um ástæður eða efni þessa fundar sem hann sat fyrir hönd dómsmála­ráðherra í dómsmála­ráðuneyti. Að lokum vill hún fá upplýsingar um á grund­velli hvaða laga­sjónarmiða ráðuneytið hefur talið sér fært að upplýsa ekki um tilefni fundarins eða fundar­efni.

Ræddu Samherjamálið við forsætis- og utanríkisráðherra

Í byrjun júní heimsótti namibísk sendi­nefnd Ísland. Tilefnið meðal annars að hitta íslenska rann­sakendur sem unnið hafa að hinu svokallaða Samherja­máli. Þeir hafa leikið stórt hlutverk við að aðstoða yfirvöld í Namibíu við þann anga rann­sóknarinnar sem fer fram þar, meðal annars með ýmis konar gagna­öflun og með því að sinna réttar­beiðnum. Raunar höfðu rann­sakendur og aðrir fulltrúar namibískra stjórn­valda einnig hitt íslenska rann­sakendur sem vinna að rannsókn Samherja­málsins í höfuð­stöðvum Europol í maí í saman tilgangi.

Í sendi­nefndinni sem kom til Íslands í júní síðastliðnum voru auk Netumbo Nandi-Ndaitwah meðal annars Martha Imalwa, ríkis­saksóknari Namibíu, og Erna van der Merwe, aðstoðar­framkvæmda­stjóra namibísku spillingar­nefndarinnar. Þær funduðu einnig með Katrínu Jakobs­dóttur forsætis­ráðherra og Þordísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfa­dóttur utan­ríkis­ráðherra. Í svari við fyrir­spurn Stundarinnar um tilgang heim­sóknarinnar sagði Katrín að um kurteisis­heimsókn hafi verið að ræða þar sem Nandi-Ndaitwah ræddi „meðal annars Samherja­málið sem er til rann­sóknar í báðum löndum. Fram kom að samvinna við íslensk rannsóknar­yfirvöld hefði verið góð og að ósk um framsal þriggja Íslendinga hefði verið komið á framfæri við hlut­aðeigandi íslensk yfirvöld. Ég harmaði þetta mál, eins og ég hef áður gert, og sagði íslenskum stjórn­völdum mikið í mun að það yrði rannsakað til hlítar og leitt til lykta fyrir dómstólum.“

Í tilkynningu á vef stjórnar­ráðsins var haft eftir Þórdísi Kolbrúnu að Samherja­málið hafi líka verið rætt á fundi hennar og aðstoðar­forsætis­ráðherrans. „„Ég áréttaði á fundinum að þetta mál væri eðlilegum farvegi hjá lögreglu og saksóknurum beggja ríkja og að íslensk stjórn­völd tækju því af mikilli alvöru og legðu áherslu á góða samvinnu við namibísk stjórn­völd, hér eftir sem hingað til. Þetta var jákvæður og uppbyggilegur fundur og gagnlegt að heyra sjónarmið Nandi-Ndaitwah.“

„Nýkomið frá Gullfossi og Geysi og reiknar með að fá fund með ráðherra“

Síðdegis þennan dag, 7. júní, fundaði Nandi-Ndaitwah og sendi­nefnd hennar svo með Brynjari Níelssyni, aðstoðar­manni dómsmála­ráðherra. Hún hafði óskað eftir að funda með Jóni Gunnars­syni, en kann komst ekki, og bauð fram Brynjar í sinn stað. Auk hans sátu fundinn, sem stóð yfir í rúma klukku­stund, tveir skrif­stofu­stjórar og einn stað­gengill skrif­stofustjóra fyrir hönd dómsmála­ráðuneytisins.

Brynjar hefur ekki viljað upplýsa fjölmiðla um hvað fór fram á fundinum og sagði í færslu á Facebook í byrjun ágúst að hann myndi ekki gera það nema að hann væri viss um að Namibíu­mennirnir væru „sáttir við það“.

Í þeirri færslu sagði Brynjar að hann vissi ekki hvort fólkið hafi verið í embættis­erindum eða hvort þau hafi litið á fundinn með sér sem óformlegan. „„Sjálfur held ég að það sé nánast óþekkt að fólk í embættis­erindum banki upp á í stjórnar­ráðinu nýkomið frá Gullfossi og Geysi og reiknar með að fá fund með ráðherra. Í besta falli er hægt að kalla slíka fundi óformlega.“

Dómsmála­ráðuneytið hefur neitað að greina frá innihaldi fundarins og afhenda minnis­blöð af honum með vísan til upplýsinga­laga. Frétta­vefurinn Mannlíf, sem spurðist fyrir um málið, hefur skotið þeirri niður­stöðu til úrskurðar­nefndar um upplýsingamál.

Athugasemd Brynjar vakti furðu

Þrátt fyrir þetta hefur ýmislegt spurst út um það sem fram fór á fundinum. Stundin greindi frá því 26. ágúst síðastliðinn að Brynjar hafi þar gert athuga­semdir við að namibíski ríkis­saksókn­arinn, Martha Imalwa, hefði vísaði til Samherja­manna sem sakborninga (e. accused) á fundinum. Í umfjöllun Stundarinnar segir að „þessi athugasemd Brynjars mun hafa valdið nokkurri furðu hjá ríkis­saksókn­aranum namibíska og fylgdar­liði hans, sem hafi gefið það sterkt til kynna eftir fundinn að þau hefðu talið hann tilgangs­lausan og lítið þótt til viðmælenda sinna koma.“

Þar sagði enn fremur að Namibíu­mönnum hafi þótt athugasemd Brynjars sérkennileg, enda liggi fyrir að fjöldi Samherja­manna hefur réttar­stöðu grunaðra í rannsókn hér á landi og í Namibíu. „Namibískir fjöl­miðlar hafa lýst því þannig að sendi­nefndin namibíska líti svo á að íslensk stjórn­völd hafi í raun hunsað þau með fundinum og tilraunum þeirra til að greiða fyrir framsali þriggja Íslendinga, sem bíða ákæru í Namibíu. Í forsíðu­frétt dagblaðsins Namibian Sun eru stjórn­völd í Namibíu sögð allt annað en ánægð með viðbrögð íslenskra stjórn­valda og talað um að líta megi á það sem móðgun að íslenski dómsmála­ráðherrann hafi ekki setið fundinn, heldur sent aðstoðar­mann á fundinn í sinn stað. Innan namibískrar stjórn­sýslu sé fólk því reitt yfir trakteringunum sem þeir telja sig hafa fengið hér á landi.“

Í svari við fyrir­spurn Stundarinnar um málið sagði Brynjar þetta ekki rétta lýsingu á því sem fram fór á fundinum og neitaði því að hann hafi gert athuga­semdir við orðalag ríkis­saksókn­arans. „Ég var hins vegar að reyna að átta mig á því hvaða stöðu mennirnir hefðu í þessari rannsókn úti í Namibíu. Hvort þeir hefðu verið kærðir? Hefðu réttar­stöðu grunaðra? Eða hvernig það væri eiginlega. Ég var að reyna að átta mig á þessari stöðu,“ sagði Brynjar við Stundina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Verulegar breytingar voru gerðar á uppbyggingu útgerðar­risans Samherja í fyrra þegar fjár­festingar­starfsemin var aðskilin frá útgerðar­rekstri með stofnun eignarhalds­félagsins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eigendur Samherja ætli sér einnig að færa útgerðar­félagið inn í eignarhalds­félagið Látra­fjöll en skattalegar ástæður geta legið þar að baki.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár