Yellen: Góð menntun lykillinn að hagsæld í alþjóðavæddum heimi

Janet Yellen, Seðla­bankastjóri Banda­ríkjanna, segir að menntun verði sífellt mikil­vægari í alþjóða­væddum heimi og að hagtölur um launa­þróun í Banda­ríkjunum sýni þetta glögglega. Þetta kom fram í ræðu hennar í University of Baltimore í gær, sem vitnað er til á vef Wall Street Journal.

Hún sagði að tæknilegar framfarir myndu á næstu árum gera kröfu um mikla sérhæfingu á mörgum sviðum, og þar væri góð háskóla­menntun lykil­atriði. Sveigjanleiki á vinnu­markaðnum væri lykil­atriði, og að á þeim vettvangi hefðu náðst fram miklar framfarir á síðustu árum. Atvinnu­leysi mælist nú 4,6 prósent í Banda­ríkjunum, en hæst fór það í rúmlega tíu prósent árið 2010. Jafnt og þétt hefur dregið úr því og kaup­máttur launa aukist, eftir að Barack Obama tók við stjórnar­taumunum, mitt í djúpri fjármála­kreppu, í byrjun árs 2009.

Yellen sagði að erfitt væri að greina það nákvæmlega, hversu hratt miklar tækni­breytingar myndu breyta lands­laginu á vinnu­markaði en vísbendingar væru um að miklar breytingar væru framundan. Þetta myndi þýða að ný störf yrðu til, og önnur detta út. 

Seðla­banki Banda­ríkjanna hækkaði í síðustu viku stýri­vexti í 0,75 prósent, úr 0,5. Þetta var önnur vaxta­hækkun bankans á síðustu átta árum, en vextirnir voru hækkaðir úr 0,25 prósent í 0,5 prósent í desember í fyrra. Yellen sagði við þetta tilefni að efnahagur Banda­ríkjanna væri á uppleið og að bata­merkin væru farin að sjást í svo til öllum geirum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár