Milla hætt að aðstoða Lilju og aðstoðar nú Willum – Margar aðstoðarmannastöður lausar

Aðstoðar­menn ráðherra og ríkis­stjórnar geta orðið allt að 27 miðað við núverandi fjölda ráðuneyta. Þó nokkrir ráðherrar eiga eftir að manna aðstoðar­manna­stöður sínar.

Willum Þór Þórsson ásamt aðstoðarmanni sínum, Millu Ósk Magnúsdóttur, við opnun á hjúkrunardeild fyrir COVID-sjúklinga á hjúkrunarheimilinu EIR fyrr í dag.
Willum Þór Þórsson ásamt aðstoð­ar­manni sínum, Millu Ósk Magn­ús­dóttur, við opnun á hjúkr­un­ar­deild fyrir COVID-sjúk­linga á hjúkr­un­ar­heim­il­inu EIR fyrr í dag. Mynd: Stjórnarráðið

Milla Ósk Magnúsdóttir er orðin aðstoðar­maður nýs heilbrigðis­ráðherra, Willums Þórs Þórssonar, samkvæmt starfs­mannaskrá heilbrigðis­ráðuneytisins. 

Hún var ráðin aðstoðar­maður Lilju Alfreðs­dóttur í mennta- og menningar­mála­ráðuneytinu á síðasta kjör­tímabili eftir að hafa verið ráðin þangað fyrir tveimur árum síðan. Áður hafði Milla starfað hjá RÚV í áratug sem frétta­maður, aðstoð­ar­fram­leið­andi frétta og dag­skrár­gerð­ar­kona í útvarpi og sjón­varpi.

Hrannar Pétursson, hinn aðstoðar­maður Lilju á síðasta kjör­tímabili, hefur horfið til annarra starfa og því er Lilja án opinberra aðstoðar­manna sem stendur.

Breytingar hjá Katrínu

Að minnsta kosti þrír ráðherrar halda báðum sínum aðstoðar­mönnum frá síðasta kjör­tímabili. Það eru Bjarni Benediktsson, Sigurður Ingi Jóhannsson og Ásmundur Einar Daðason. Hersir Aron Sigur­geirsson og Páll Ásgeir Guðmundsson eru aðstoðar­menn Bjarna, Ingveldur Sæmunds­dóttir og Sigtryggur Magnason aðstoða Sigurð Inga og Sóley Ragnars­dóttir og Arnar Þór Sævarsson eru áfram aðstoðar­menn Ásmundar Einars.

Jón Gunnarsson, nýr dómsmála­ráðherra, hefur þegar tilkynnt um ráðningu á Hreini Loftssyni og Brynjari Níelssyni í hlutverk aðstoðar­manna sinna.

Iðunn Garðars­dóttir mun halda áfram að aðstoða Svandísi Svavars­dóttur í ráðuneyti sjávar­útvegs- og land­búnaðarmála en Birgir Jakobsson, fyrr­verandi land­læknir sem aðstoðaði hana í heilbrigðis­ráðuneytinu, er ekki lengur á starfs­mannaskrá stjórnar­ráðsins.

Katrín Jakobs­dóttir hefur misst annan aðstoðar­mann sinn, Lísu Kristjáns­dóttur, á önnur mið en Bergþóra Benedikts­dóttir heldur áfram sem hinn aðstoðar­maður forsætis­ráðherra. Auk þess eru þrír aðrir aðstoðar­menn ríkis­stjórnar starfandi í forsætis­ráðuneytinu samkvæmt starfs­mannaskrá: Henný Hinz er aðstoðar­maður ríkis­stjórnar á sviði vinnu­markaðs-, efnahags- og loftlags­mála, Lára Björg Björns­dóttir er aðstoðar­maður ríkis­stjórnarinnar í jafnréttis­málum og Róbert Marshall er upplýsinga­fulltrúi ríkis­stjórnarinnar.

Guðlaugur Þór og Guðmundur Ingi án aðstoðarmanna

Guðlaugur Þór Þórðarson, ráðherra loftslags-, umhverfis- og orkumála, þarf að finna sér tvo nýja aðstoðar­menn þar sem báðir hans hafa hætt störfum. Diljá Mist Einars­dóttir er orðin þingmaður og Borgar Þór Einarsson var skipaður vara­framkvæmda­stjóri Uppbygginga­sjóðs EES skömmu eftir síðustu kosningar og áður en ráðherra­kapallinn var lagður.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa­dóttir, nú utan­ríkis­ráðherra, missti líka báða aðstoðar­menn sína þegar Hildur Sverris­dóttir var kjörin á þing og Ólafur Teitur Guðnason ákvað að láta gott heita. Hún réð Þórlind Kjartansson í aðra stöðuna í gær.

Eydís Arna Líndal fylgir Áslaugu Örnu Sigurbjörns­dóttur áfram í vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðuneytinu en hún þarf að ráða annan aðstoðar­mann í stað Hreins Lofts­sonar, sem varð eftir í dómsmála­ráðuneytinu.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson á einnig eftir að manna aðstoðar­manna­stöður sínar í nýju ráðuneyti en Orri Páll Jóhannsson, sem aðstoðaði hann í umhverfis­ráðuneytinu á síðasta kjör­tímabili, var kjörinn á þing fyrir Vinstri græna í nýliðnum kosningum.

Geta orðið allt að 27 talsins

Lögum um Stjórn­­­ar­ráð Íslands var breytt árið 2011 með þeim hætti að heim­ild til að fjölga aðstoð­­ar­­mönnum ráð­herra var útvíkkuð þannig að hver og einn þeirra má ráða tvo slíka. Auk þess var sett inn heim­ild fyrir rík­­is­­stjórn­­ina að ráða þrjá aðstoð­­ar­­menn til við­­bótar ef þörf kref­­ur. Alls má rík­­is­­stjórnin því ráða 27 aðstoð­­ar­­menn sem stend­ur. Laun og starfs­­kjör aðstoð­­ar­­manna ráð­herra mið­­ast við kjör skrif­­stofu­­stjóra í ráðu­­neytum sam­­kvæmt ákvörð­unum kjara­ráðs.

Rekstur rík­­is­­stjórnar Íslands, sem í fel­­ast launa­greiðslur ráð­herra og aðstoð­­ar­­manna þeirra, er áætl­­aður 714,9 millj­ónir króna á næsta ári sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varpi. Það er um fimm pró­sent meiri kostn­aður en áætlun vegna árs­ins 2021 gerir ráð fyr­ir, en þá á rekst­ur­inn að kosta 681,3 millj­ónir króna.

Á fyrsta heila ári fyrri rík­­is­­stjórn­­­ar­innar Katrínar Jak­obs­dóttur við völd, árið 2018, var kostn­aður vegna launa ráð­herra og aðstoð­­ar­­manna áætl­aður 461 millj­­ónir króna. Kostn­að­ur­inn á næsta ári er því 55 pró­sent hærri í krónum talið.

Kostn­að­ur­inn á þessu fyrsta starfs­ári rík­is­stjórnar Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks reynd­ist á end­anum hærri, eða 597 millj­ónir króna. Því hefur kostn­að­ur­inn vegna launa ráð­herra og aðstoð­ar­manna þeirra alls vaxið um 117,9 millj­ónir króna frá 2018, eða 20 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár