Fjárlaganefnd hættir við og felur ráðherra að útfæra 100 milljóna fjölmiðlastyrkinn

Meirihluti fjár­laganefndar Alþingis hefur ákveðið að fela ráðherra að ákveða hvernig auka 100 milljónum króna verði varið til stuðnings einka­reknum fjöl­miðlum. Í fyrri ákvörðun meirihlutans var þessum 100 milljónum gott sem lofað sjónvarps­stöðinni N4, einu sjónvarps­stöðinni sem er með höfuð­stöðvar á lands­byggðinni.

Formaðurinn
For­mað­ur­inn Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­kona Vinstri grænna, er for­maður fjár­laga­nefndar.

Meirihluti fjár­laganefndar Alþingis hefur hætt við 100 milljóna króna framlag til sjónvarps­stöðvar sem fram­leiðir eigin efni á lands­byggðinni. Þess í stað er Lilju Alfreðs­dóttur menningar­mála­ráðherra falið að að endur­skoða reglur um rekstrar­stuðning við einka­rekna fjölmiðla á lands­byggðinni þannig að aukið tillit verði tekið til þeirra sem framleiða efni fyrir sjónvarp. Þetta kemur fram í nýju nefndar­áliti fjár­laganefndar um fjár­laga­frumvarpið sem birt var á vef Alþingis í kvöld. Þar er vísað í umræðu í fjöl­miðlum í dag um styrkinn.

Fyrri ákvörðun nefndarinnar um að bæta 100 milljóna framlagi á fjárlögin vegna reksturs fjölmiðla á lands­byggðinni sem framleiða eigið efni fyrir sjónvarpsstöð kom nokkuð óvænt fram þann 5. desember síðastliðinn. N4 er eina sjónvarps­stöðin sem starfar á lands­byggðinni en auk hennar framleiða Víkur­fréttir vefþætti.

Í morgun greindi Kjarninn svo frá því að framkvæmda­stjóri N4, María Björk Ingva­dóttir, hefði sent fjár­laganefnd beiðni um nákvæmlega 100 milljóna króna styrk. Bjarkey Olsen …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Eitt minnsta fjölmiðlafyrirtækið fær hæsta styrkinn. Er það vegna þess að eigendurnir eru Samherji og Kaupfélag Skagfirðinga?
    0
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Þetta er nú meira grínið þetta fjölmiðlaumhverfi orðið hefur kannski alltaf verið svona síðan í Geirfinnsmálinu dettur einhverjum í hug að tekið sé orðið fullt mark á þessu ríkisstyrktir fjölmiðlar sem kóa með helvítis kommaspillingunni sem er hreint út sagt skuggaleg í meira lagi
    0
  • Einar Már Gunnarsson skrifaði
    Meira ruglið og illa farið með almannafé.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár