Öndinni sem var slaufað

Hér er bók­ar­kápa. Baðönd með mynd­ar­legan hatt syndir um í Reykja­vík­ur­tjörn, trega­full og glett­inn í senn. Fyrir ofan stendur Einlægur Önd og enn ofar stendur Eiríkur Örn Norðdahl, með mun stærri stöfum. Enda menn tölu­vert stærri en bað­endur, 198 senti­metrar í til­felli Eiríks, eins og kemur fram í bók­inni. En það má alveg spyrja sig hver tit­ill­inn sé, er þetta Einlægur Önd eftir Eirík Örn eða Eiríkur Örn eftir Einlægan Önd?

Bók

Einlægur Önd

Höfundur Eiríkur Örn Norðdahl
Forlagið - Mál og menning
283 blaðsíður
Gefðu umsögn

Bæði gengur upp á sinn hátt, aðal­per­sóna bók­ar­innar er Eiríkur Örn – And­ar­við­ur­nefnið er bara bernskuminn­ing. Kápu­myndin er eftir Jóhann Ludwig Torfason og bak­grunn­ur­inn vísar í mynd­skreyt­ingar í Hjarta Reykja­víkur, búð­inni sem hann rekur, og myndin og tit­ill­inn slá strax tón­inn fyrir bók­ina; þetta er grínaktug ein­lægni, ein­lægni leiks­ins. En um leið bók sem er lík­leg til að tala um alvar­lega hluti án nokk­urs hátíð­leika.

Bókin inni­heldur líka tvær …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár