23 þúsund skipverjar fastir í Persaflóanum

Forseti Banda­ríkjanna ætlar að gera hlé á sérstökum aðgerðum til þess að tryggja skipa­umferð um Hormús­sundið. yfir tuttugu þúsund skip­verjar sitja fastir í Persa­flóanum.

Olía í ljósum logum
Olía í ljósum logum Stríðs­mark­miðum Banda­ríkj­anna hefur verið náð að sinni sam­kvæmt utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna. Mynd: ATTA KENARE / AFP

Forseti Banda­ríkjanna, Donald Trump, hefur gert hlé á svokölluðu „Frelsis­verkefni“ bandarísku ríkis­stjórnarinnar, sem gengur út á að tryggja eðlilega skipa­umferð um Hormús­sundið að því er AP greinir frá. Tugir þúsunda skipverja sitja fastir í Persa­flóanum.

Forsetinn sagðist hafa gert hlé aðgerðinni svo hann gæti lokið samningum við Íran til þess að binda endi á stríðið. Vaxandi þrýstingur er á forsetann af hálfu bandaríska þingsins, en lögum samkvæmt þarf forsetinn að fá samþykki þingsins fyrir stríði innan 60 daga frá því að innrás hefst. Þeim fresti lauk í síðustu viku en forsetinn hefur vísað til aðgerð­anna með sams konar hætti og innrás Rússa inn í Úkraínu, að um sértæka hernaðar­íhlutun hafi verið að ræða.

Óvænt stefnu­breyting Trumps var eins og oft áður tilkynnt í færslu á samfélags­miðlum þar sem hann sagðist ætla að fresta verk­efninu um „stutta stund“ til þess að skapa svigrúm til samninga­viðræðna við Írani í von …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár