Sígaunahöfðinginn fær að vera áfram í Danmörku

Gimi Levakovic.
Gimi Levakovic.

Gimi Levakovic, höfuðpaur einnar alræmdustu glæpa­fjölskyldu Danmerkur, mun fá að vera áfram í Danmörku. Hæstiréttur landsins komst að þeirri niður­stöðu í dag. Levakovic hafði áður verið gert að yfirgefa landið í kjölfar þess að hann myndi ljúka fimmtán mánaða fangelsis­dómi sem hann hlaut í ágúst í fyrra. Levakovic, sem oft er kallaður „sígauna­stjórinn“ (e. gypsy boss og d. sigøjner­bossen) hlaut dóminn í í hér­aðs­dómi í Næst­ved fyrir líf­láts­hót­anir og vopna­burð.

Hann varð einn umtal­að­asti maður Dan­merkur í jan­úar 2015 eftir að danska sjón­varps­stöðin TV2 sýndi tvo sjón­varps­þætti um Levakovic fjöl­skyld­una. Þætt­irnir voru gerðir með sam­þykki fjöl­skyld­unnar og þar eru löng við­töl við Gimi Levakovic og Jura bróð­ur­son hans sem nú afplánar fimm ára dóm og verður vísað úr landi.

Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um fjöl­skyld­una í frétta­skýr­ingu í jan­úar 2015.

Grátklökkur

Levakovic komst svo aftur á forsíður danskra blaða í október 2015 þegar Eystri-Lands­réttur snéri við dómi héraðs­dóms sem hafði vísað Levakovic úr landi. Lands­rétturinn þyngdi fangelsis­dóminn um þrjá mánuði en snéri við brott­vísunar­dóminum. Dómurinn vakti hörð viðbrögð í Danmörku.

Danskir fjöl­miðlar sögðu á þeim tíma að Gimi Levakovic, sem venju­lega er kok­hraustur, hafi verið mjög stress­aður í dóm­salnum og svit­inn perlað af hon­um. „Þegar hann heyrði að sér yrði ekki vísað úr landi grét hann eins og smá­barn,“ sagði eitt dönsku blað­anna. Sak­sókn­ari sagði strax að dóms­upp­kvaðn­ingu lok­inni að hann myndi freista þess að fá mál­inu skotið til Hæsta­réttar og von­að­ist til að það tæk­ist.

Það tókst og nú hefur Hæstiréttur staðfest þá niður­stöðu og sagt að brott­vísun Levakovic, sem er króatískur ríkis­borgari, sé í andstöðu við mann­réttinda­sáttmála Evrópu. Héraðs­dómurinn yfir Levakovic var dómur númer 27 sem hann hlýtur í Danmörku. Á Facebook-síðu sinni í dag fagnar hann ákvörðuninni og segist grát­klökkur.

Varð landsþekkt eftir sjónvarpsþátt

Levakovic-fjöl­skyldan varð lands­þekkt í Danmörku í janúar 2015 þegar sjón­varps­stöðin TV2 sýndi tvo þætti um hana sem byggð­ust að miklu leyti á við­tölum við ætt­ar­höf­uðið Gimi. Fjöl­skyldan flutti frá Króa­tíu til Dan­merkur árið 1972 og hefur alla tíð síðan verið á fram­færi danskra skatt­borg­ara og hefur þegið jafn­gildi 1700 millj­óna íslenskra króna sér til fram­færslu. Fjöl­skyld­an, sem býr á Ama­ger, hefur stækkað á þessum 43 árum og telur nú fleiri en 40. Eng­inn úr fjöl­skyld­unni hefur stundað laun­aða vinnu. Fram­færslu­líf­eyrir hins opin­bera hefur þó ekki hrokkið til og fjöl­skyld­an, einkum karl­arn­ir, virðast hafa drýgt tekj­urnar með ránum og grip­deildum, sem þeir hafa stundum hlotið dóma fyrir.

Ætt­ar­höf­uðið Gimi Levakovic hefur í við­tölum sagt að fjöl­skylda sín standi saman í blíðu og stríðu. Afskipti lög­regl­unnar hafa stundum orðið til að trufla heim­il­is­frið­inn. Sjálfur hefur Gimi, sem er 46 ára, setið inni í tæp sjö ár sam­tals og bræður hans og bræðra­synir hafa margoft setið inni, um lengri eða skemmri tíma. Sumum þeirra hefur oftar en einu sinni verið vísað úr landi en þeir hafa jafn­harðan snúið aftur til Danmerkur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár